Army of me

Wednesday, July 11, 2007

Klaufabárður

Ég er með stefið úr klaufabárðunum á heilanum svona ef einhver skyldi muna eftir þeim. Ástæðn fyrir því að þetta stef er á full swing í hausnum á mér er sú að Anton er búinn að syngja það ansi oft fyrir mig síðastliðinn sólarhring eða svo.

Við erum búin að mála eldhúsið. Ég var ein alveg í góðri sveiflu, sprangandi á milli borða í eldhússinnréttingunni með fullan bakka af málningu í höndunum. Ég var jafn tignarleg og mjaðmagrindarbrotinn köttur þegar ég hitti ekki á stólinn sem var eyjan mín milli borðplatnanna tveggjaog skvetti málningu yfir AAAALLLLT. Í sömu andrá kom Anton heim svo það fyrsta sem hann heyrði þegar hann steig út úr bílnum var gólið í konunni hans sem sagði að eldhúsið vær undirlagt í málningu.. og ég er sko að tala um það að við þurftum að ausa málningunni upp með plastmálum. Sweet.

Svo málaði Anton loftið. Ekki meira en þremur mínútum síðar ákvað gullfiskurinn, konan hans að klöngrast upp á eldhússinnréttinguna og mála í hornin..en ég sá svolitið eftir þeirri ákvörðun stuttu seinna þegar ég uppgötvaði að ég var náttúrulega að þurrka rennblautt loftið með hárstrýinu mínu. Hvern í fjandanum nær maður málningu úr hári???

Eftir að hafa klöngrast talsvert upp á eldhússinnréttingunni þorði ég ekki niður aftur svo Anton þurfti að koma mér til bjargar og það ekki í fyrsta sinn. Svo dýfði ég endanum á taglinu mínu í málningarpoll svona til að hafa smá simmitríu í nýja háralitnum. Ég lít út fyrir að vera nokkrum árum eldri svona hvíthærð.

Núna er íbúðin alveg undirlögð í drasli. Í eldhúsinu er gólfið útatað í málningu, skúffurnar úr eldhússinnréttingunni úti á miðju gólfi að þorna og allt draslið úr eldhúsinu inni í stofu. Ekkert smart skal ég segja ykkur!

Við erum að fara að yfirgefa landið í fyrramálið. Erum að pakka og gera okkur reddí. Hafið það gott hérlendis á meðan og ekki gera neitt af ykkur.

Eygló klaufabárður

5 Comments:

At July 11, 2007 11:51 AM, Anonymous Anonymous said...

þú ert æði

hafðu það gott í útlandinu

kv Eva Hrönn

 
At July 11, 2007 4:36 PM, Anonymous Anonymous said...

Þú ert snillingur Eygló mín.... það er spurning um að ég fái þig lánaða til að flýta fyrir parketinu mínu :o)

Hafðu það gott úti

Kveðja, Lóló

 
At July 12, 2007 7:37 AM, Anonymous Anonymous said...

þú ert best! mig langar að vera flug á vegg heima hjá ykkur stundum - miðað við lýsingarnar ;)

Hafið það æðislegt í útlandinu.

 
At July 13, 2007 6:37 AM, Anonymous Anonymous said...

Þú ert bara Frábær Eygló :D

Frábærast er að geta hlegið að sjálfri sér ;)

Hafðu það gott í útlöndum

sjáumst skvís
Linda

 
At July 17, 2007 3:28 PM, Anonymous Anonymous said...

Eygló mín það má með sanni segja að þú sért one of a kind :) En hlakka svakalega til að koma til þín þegar þú kemur heim og sjá eldhúsið hjá þér, er ekki enn planað að hafa ammæli á föstudaginn ? Ég er ekki langt frá ef þig vantar hjálp... æm in og alltaf heima ;)

Sjáumst heilar María Ösp

 

Post a Comment

<< Home