Army of me

Saturday, July 21, 2007

Eitt og annað

Um leið og ég finn myndavélasnúruna mun ég sýna ykkur nokkrar Svíþjóðarmyndir og segja ykkur ferðasöguna. You have my words.

Héðan er fínt að frétta að vanda, eldhúsið óðum að taka á sig mynd og stofan því að verða minna draslaraleg samfara því. Kemur allt með kalda vatninu eins og segir einhvers staðar.

Ég er búin að vera að ráðast á Mount. Washmore undanfarna daga..hvernig er hægt að vera með svona gígantískt mikið af þvotti þegar það eru bara 3 í heimili ? Mér er það hulin ráðgáta. Að vísu erum við öll þeim gáfum gædd að vera sullarar miklir svo það gæti svosem verið skýringin. Förum ekki nánar út í það.

Nú styttist óðum í skólann. Ég borgaði ekki skólagjöldin. Svo sá ég eftir því og ákvað að kannski væri best að borga og reyna bara að kýla á þetta þó það vaxi mér svolítið í augum núna. Þetta hlýtur að reddast einhvern veginn, ég verð að trúa því. Mamma og pabbi hlupu undir bagga með mér og lánuðu mér fyrir skólagjöldunum svo nú er búið að borga skólann, viku á eftir áætlun. Hrikalega er erfitt að kyngja stoltinu. Ég þoli ekki að fá lán og hata að skulda.

Verkefnastaflinn bíður mín..saxast voða lítið á hann á meðan ég sit hér allavega. Kannski spurning að reyna að bretta upp ermar og leita að skólabókunum svona til að byrja með..hmm ;)

Svona af því að ég var eitthvað að impra á ellitremma í gær, þá langar mig að koma pælingum mínum aðeins meira á framfæri. Ég fór nefnilega að hugsa það í gærkvöldi hvað maður getur verið vanþakklátur. Auðvitað er bara frábært að vera orðin 27 ára, það þýðir að ég fékk að vera til í 27 ár og fæ vonandi að vera til svolítið lengur. Ég hef verið að fylgjast með bloggi þriggja ungra baráttukvenna sem allar voru að berjast við krabbamein. Nú eru þær allar látnar. Ég er svo heppin að vera ekki í þeirra sporum.

Jamm..ansi þunnt blogg héðan í kvöld svosem. Vonandi hef ég eitthvað krassandi að segja næst þegar blogglöngunin grípur mig.

2 Comments:

At July 21, 2007 6:02 PM, Anonymous Anonymous said...

Æ, veistu maður getur ekki alltaf verið skáldlegur og fullur af hugmyndum. En það að hafa skilning á að lífið er ferðalag og ekkert er sjálfgefið, ja það er sannarlega þónokkuð. Og þú mín kæra hefur sannarlega margt að þakka fyrir 27 ár tvo sæta og góða stráka og helling af hæfileikum. Er hægt að byðja um meira. Við erum alltaf að læra og þú tekur þetta allt með þínum hraða ekkert liggur á. Góða nótt sætust, mamma

 
At July 22, 2007 2:57 AM, Anonymous Anonymous said...

Eygló mín það er kannski hugggun að ég er að verða 28 en þú segir það satt að maður á víst að vera þakklátur fyrir árin sem maður fær, við erum þá allavega ekki dauðar á meðan ;) hehe...
Heyrumst skvís María Ösp

 

Post a Comment

<< Home