Army of me

Sunday, July 22, 2007

Góðan dag

Neibb, Svíþjóðarmyndir ekki komnar á netið enn. Afsakið enn og aftur. Ég ákvað samt að skella inn einni sumarmynd af litla gerpinu svona til að gera ekki út af við lesendur mína með myndaleysi.

Báðar vélknúnar heimilishjálpir heimilisins hamast núna sveittar, sín í hvoru horni. Veðrið er ótrúlega fallegt, og við erum að spá í að skella okkur í Ikea að skoða okkur eldhússklukku og virða fyrir okkur eldhússtólana sem verða líklega keyptir þegar eldhúsið er hrokkið í fastar skorður. Hvernig er hægt að vera spenntur fyrir því að fara í Ikea ?

Hey..mig langar ógurlega að sjá draugamyndina sem er í bíó núna..room eitthvað..1408 ef ég man rétt. Ég fékk gæsahúð í hnakkann þegar ég horfði á trailerinn. Annars myndu kannski einhverjir segja að ég ætti ekki erindi á þessa mynd þar sem ég gerði mig að fífli í draugahúsinu í Liseberg í Svíþjóð..hömm hömm. En það er önnur saga!!

9 Comments:

At July 23, 2007 3:07 AM, Anonymous Anonymous said...

Hæ skvís þetta með aldurinn þú veist að við erum ekki vitund eldri en okkur finnst við vera þess vegna er ég bara 17 :) En í alvöru, allveg rétt hjá þér maður á að vera þakklátur fyrir hvert ár sem maður fær að vera hérna.Heyrumst síðar,Heiða Björg

 
At July 23, 2007 10:12 AM, Anonymous Anonymous said...

Össs jedúdda ekki ætla ég fyrir mitt litla líf að fara á þessa mynd með þér !!! Ég fæ bara martröð á því að horfa á trailerinn... gat ekki horft á hann allann :$
En við förum á kellingamyndina bráðum mín kæra :D Get sko alveg setið yfir heilli þannig ;)
Kveðja María Ösp (með litla hjartað)

 
At July 23, 2007 10:36 AM, Blogger Eygló said...

Já ég er sko mikið til í það María mín! Þú-ég-kellingamynd og fullt af nammi = skemmtilegt kvöld :)

 
At July 23, 2007 1:12 PM, Anonymous Anonymous said...

gekk eitthvað að finna eldhúsklukku í ikea?? ég er sko búin að leita mér að klukku heillengi... held að vandamálið sé það að ég er búin að búa til einhverja ímynd af klukku sem hvergi er til!! :)

 
At July 23, 2007 1:45 PM, Blogger Eygló said...

Heyrðu já Sigurlaug, við fengum ógó fína klukku á 800 krónur! Hún er akkúrat eins og við vildum;) og svo voru til fleiri týpur líka- mæli með því að þú kíkir á úrvalið!

 
At July 24, 2007 4:36 AM, Anonymous Anonymous said...

Hæ hæ.
Til hamingju með afmælið. Sé á blogginu að þið hafið verið í Gautaborg hjá Rögnu vinkonu minni...bið að heilsa þér og þínum Ragna mín ef þú lest þetta! Kíktu endilega á mína síðu :-)
Frábært hvernig maður ,,finnur" fólk með þessum hætti!
Kveðja
Sissan

 
At July 24, 2007 5:07 AM, Anonymous Anonymous said...

Verðuru ekki í fjarnámi með mér? :(
hilsen....Johanne

 
At July 24, 2007 8:25 AM, Blogger Eygló said...

Já Sissa, þetta er sko lítill heimur:)

Jóhanna, ég er ekki 100% ákveðin ennþá ;) þetta kemur allt í ljós en ég er svona að gæla við það að reyna við dagskólann

 
At July 26, 2007 3:54 PM, Anonymous Anonymous said...

Hæbbs, mar er nú aðeins farið að sakna "langt-fram-á-nótt"msn spjallanna okkar.

Sí jú kannski eitthvert kvöldið :)

kv.Ásta
í dk og allar útskýringar pa dansk!

 

Post a Comment

<< Home