Army of me

Thursday, August 02, 2007

Síðasti laugardagur...

Síðasti laugardagur var tekinn í fyrra fallinu þegar við mættum, 12 vaskar skvísur og gæsuðum hana Tinnu Lind krúttipútt.. Ég er búin að þekkja Tinnu síðan við vorum þriggja og fjögurra ára..fyndið hvað tíminn líður hratt!


Um morguninn, eftir að hafa fengið morgunmat voru Tinnu afhent föt fyrir daginn.. Og þau voru gasalega smart eins og sjá má á myndinni fyrir neðan!!! :)

Eftir að hafa gert smá at í greyjinu í Kringlunni var haldið í Öskjuhlíð þar sem Tinna fór á kostum sem bandaríska heimildaþáttagerðarkonan Mary Lynn en markmið hennar var að tala við túrista á Íslandi og fá þá til að segja að Ísland sé skítaland..með í för hafði hún auðvitað upptökukonu svo þetta er allt skjalfest. Við hinar sátum inni í Perlu á meðan og drukkum kaffi og létum lítið fyrir okkur fara.



Eftir sprellið í Öskjuhlíðinni, var Tinnu plantað í brekku og við fórum allar í einfalda röð og tjáðum henni, ein í einu ást okkar á henni. Það var ferlega krúttleg og innileg stund:)


En þá var líka kominn tími til að sprella aftur! Svo þá tók við stúdíótími þar sem gæsin rappaði eins og hún hefði aldrei gert annað og var það auðvitað hin mesta skemmtum fyrir okkur hinar:) Við sungum svo allar saman viðlagið og lagið var brennt á disk og spilað alloft um kvöldið.















Enda snilldarlag náttúrulega og þvílíkur englasöngur ;)

Gæsin fór þá í myndatöku og svo voru líka teknar myndir af öllum hópnum sem við fáum seinna. En þær myndir sem við sáum af Tinnu voru snilld!


Þá var borðað eilítið og brunað svo beint í Bláa lónið þar sem dömurnar smurðu á sig lóns-drullu og skröfuðu um allt milli heima og geima. Að Lóninu loknu var svo farið í heimahús þar sem ein úr hópnum töfraði fram snilldar humarpasta og því var skolað niður með hvítvíni. Afar ljúffengt.


Eftir matinn var svo partý þar sem gæsin fékk þá áskorun að leika Eivör Páls en það ku vera atriði sem hún tók fyrir allnokkrum árum en hefur ekki fengist til að leika aftur. Þetta kvöld varð okkur þá að ósk okkar og það var óborganlega fyndið!!!!
Þetta var frábær dagur og ég veit að brúðkaupið verður ekki síðra þegar að því kemur:) Takk fyrir frábæran dag, Tinnslan mín :*



Eftir partý kom ég aðeins við í bænum þar sem ég hitti hana Nínu mína. Við tókum að sjálfsögðu ljótumyndaseríu eins og myndin fyrir neðan ber vitni um. Mottóið okkar Nínu er nefnilega það að fagna ófríðleikanum í stað þess að leita fegurðarinnar. Þess vegna tökum við ansi góða gommu af ljótumyndum í hvert sinn sem við hittumst utan skólans..og okkur fer stöðugt fram, verðum semsagt ljótari og ljótari þátt fyrir að vera náttúrulega fríðleiksdömur;) hehhehe
Jæja...það er ansi mikið að gera í dag og sennilega ekki seinna vænna en að fara að hendast í það.


Kveðja,
Eygló grettumeistari

4 Comments:

At August 02, 2007 4:46 AM, Anonymous Anonymous said...

Vá hvað það hefur verið gaman hjá ykkur.
Alltaf hollt og gott að skemmta sér í góðra vina hópi.
Knús og kiss
Lísa

 
At August 02, 2007 5:28 AM, Anonymous Anonymous said...

Þetta hefur verið frábær dagur fyrir alla, allveg eins og gæsun á að vera.
Bæó Heiða Björg

 
At August 02, 2007 8:27 AM, Anonymous Anonymous said...

Takk sömuleiðis elsku bestan mín, ég skemmti mér alveg konunglega og er alveg ótrúlega heppin hvað ég á margar góðar vinkonur...og ég held að það sé ekki algengt að eiga eina frá því maður var fjögra ára!! Love you T

 
At August 03, 2007 3:00 PM, Blogger Eygló said...

Já Heiða Björg þetta var sko frábær dagur og allt innan skynsamlegra marka:) Alltaf gaman að skemmta sér í góðra vina hópi, sammála þér Lísa ;)

Nei Tinna, við erum sko spes :)

 

Post a Comment

<< Home