Army of me

Monday, August 13, 2007

13.ágúst 2005 - 13.ágúst 2007

Já, það eru komin tvö ár upp á dag síðan við Anton gengum í það heilaga. Dagurinn og dagarnir á undan gengu ekki slysalaust fyrir sig svosem, ekkert frekar en lífið sjálft:) En brúðkaupsdagurinn var æðislegur. Mig dreymdi í nótt að ég fékk videoið úr brúðkaupinu meira að segja! :)

Í tilefni dagsins skrifaði Soffía sæta vísu til okkar! Hún er á þessa leið:


Tvö eru frúar árin þín
trúðu á eitt i heimi
elsku hjartans dúllan mín
ekki eg ykkur gleymi
Takk Fía fína!!!

Nú erum við semsagt búin að vera saman í 7 ár og og 1/4 úr ári gott betur. Það hefur gengið vel, enda er Anton svo mikið yndi:)



Til hamingju með daginn, kúturinn minn :)

Ég sit hér og reyni að læra..þetta kemur hægt og bítandi en mætti alveg ganga aðeins betur. Stressið er farið að segja verulega til sín,því miður...helvíska, lamandi stress. En það er víst ekkert annað að gera en að hella sér í þetta og klára það sem maður klárar. Hitt verður þá bara að fá að bíða svolítið.

Eigið fallegan og góðan dag, elskurnar mínar allar.

Eygló



14 Comments:

At August 13, 2007 3:11 AM, Anonymous Anonymous said...

Já tíminn líður ótrúlega hratt en það segir líka að þá líður manni vel. Ég man eftir þessum degi eins og það hafi gerst í gær! En allavega til hamingju með daginn bæði tvö.
Heiða Björg

 
At August 13, 2007 3:15 AM, Blogger Eygló said...

Takk Heiða mín :):)

 
At August 13, 2007 8:51 AM, Anonymous Anonymous said...

Hjartanlega til hamnigju með daginn, vona að þið eigið góðan dag og alla daga, já ég man líka eftir þessum degi eins og hefði það verið í gær, og hugsa oft um þennan dásamlega dag, góða veðrið,ykkur tvö og alla frábæru gestina.
Ástarkveðja til þín og strákanna þinna
mamma

 
At August 13, 2007 8:56 AM, Blogger Eygló said...

Takk mamma :)

 
At August 13, 2007 11:53 AM, Anonymous Anonymous said...

til hamingju með daginn bæði tvö

finnst samt alveg ótrúlegt að við getum verið að fagna tveggja ára brúðkaupsafmæli, því mér finnst eins og það hafi bara veirð í gær að við vorum 7 ára að rífast í heimsókn hjá hvor annarri

hentu svo stressinu út um gluggann og einbeittu þér að því góða

kv Eva Hrönn

 
At August 13, 2007 1:06 PM, Blogger Eygló said...

Vá Eva Hrönn, sammála! Manstu þegar Óli lokaði okkur inni á heimilisfræðigangi til að við myndum sættast? Hehehehe good times.
Æi já ég ætla að reyna að henda þessu stressi út í horn í það minnsta!

 
At August 13, 2007 2:03 PM, Blogger Unknown said...

Innilega til hamingju með daginn bæði tvö. Og ég verð nú að segja eins og hinar, ég man svo vel og mikið eftir þessum degi og hvað ég skemmti mér vel þennan dag. Eigum við ekki bara að halda annað brúðkaup, þið getið endurnýjað heitin ykkar...langar svo í annað brúðkaup aftur hehe.
Knús og kossar til ykkar og til hamingju með hvort annað.
Love
Lísa

 
At August 13, 2007 2:21 PM, Anonymous Anonymous said...

hehehe já ég man eftir því...stórskemmtileg alveg hreint...ótrúlegar vorum við allavega

 
At August 13, 2007 3:19 PM, Blogger Eygló said...

Æ takk

Jú held það sé alveg málið Lísa ;) hehehe maður verður nú að búa til tilefni fyrir fleiri skemmtilegar veislur!

 
At August 13, 2007 5:25 PM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með daginn, eiginkonan mín!

Kveðja,
Anton.

 
At August 14, 2007 2:49 AM, Blogger Eygló said...

Takk, Bangsímon ;) muhahahaha

 
At August 14, 2007 4:02 AM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju bæði tvö þið eruð bara æðisleg. Gló Gló mín ekkert stress þú þarft ekki að stressa þig útaf skólanum manstu ég hef alltaf sagt þér það. Þúsund knús og kossar gamla í sveitinni

 
At August 14, 2007 7:25 AM, Blogger Eygló said...

Takk Erla mín :)
Knús og kossar á móti! Kíki í heimsókn næst þegar ég kem í sveitina, má ekki klikka á því. Þá verður líka kannski rólegra að gera hjá þér svona þegar veturinn er skollinn á:)

 
At August 14, 2007 2:57 PM, Anonymous Anonymous said...

Innilega til hamingju með tveggja ára brúðkaupsafmælið, því miður man ég ekki þennan dag svona vel eins og þið, sat heima þvílíkt svekkt að vera ekki með ykkur,, en var sko alveg með í huganum.... já núna eru þau að koma í kirkjuna og núna og núna og núna eru þau orðin hjón hehehe..
Ég styð þetta með að endurnýja heitin ykkar... langar líka í brúðkaup....
knús og kram til ykkar
Helga

 

Post a Comment

<< Home