Dæmdu ekki daginn eftir veðrinu...

Ég elska rigningu. Mér er alveg sama þó það rigni eldi og brennisteini, hárið á mér má alveg blotna og fötin mín þorna einhvern tíma aftur. Ég þoli ekki þetta endalausa pjatt og tuð um rigninguna, eins dásamleg og svalandi og hún er. Mér er alveg sama þó það sé ekki sól alla daga, svo nákvæmlega sama.
Ég elska líka myrkur. Mér er alveg sama þó það sé dimmt og drungalegt þegar ég get setið inni hjá mér með kertaljós. Það kemur enginn ljótur kall út úr runna þó ég sé ein á gangi í myrkrinu fyrir utan þó það hvarfli reyndar stundum að mér.
Af hverju er hægt að tuða svona mikið um veðrið ? Af hverju hefur veðrið svona svakalega mikil áhif á lundarfar fólks ? Ég skil það ekki..en finn samt alveg fyrir þessu sjálf..ég bara nenni ekki að tuða um það. Svona er þetta bara og það breytist ekkert þó ég tuði yfir því.
Gerði ég mistök með að ákveða að halda áfram í skólanum ? Vakti alla síðustu nótt við að ljúka verkefnum og er enn ekki búin. Held samt reyndar að prófið verði ekkert mál miðað við það sem ég hef heyrt..ætla ekki að missa svefn yfir því. Allavega ekki meiri svefn.. haha.
Framundan er lærdómsdagur, ég verð alein heima þar sem mennirnir í lífi mínu eru að fara í veiði. Á laugardaginn er svo stelpupartý hjá bekkjarsystur minni. Það verður stuð.. ég ætla að hrekja burt alla fýlupúkana sem vilja sitja á öxlunum á mér og skemmta mér, ætla ekki að hugsa um skólann né veðurtuð eða allt hitt.
Þetta var tuð í boði Eyglóar
Lifið heil :)


0 Comments:
Post a Comment
<< Home