Sumarið
Ég byrjaði daginn á því að skutla feðgunum á sína staði og hitti svo Tinnu mína og hana Fífu mína á kaffihúsi. Voða sniðugt að hittast svona snemma morguns og fá sér morgunmat saman, vildi bara að við hefðum fattað þetta fyrr. Nú er nefnilega sumarið bara búið, trúi því ekki hvað þetta leið hratt.
Við vorum einmitt að ræða um sumarið og væntingar til þess. Af hverju bindur maður alltaf svona miklar vonir við sumarið ? Við komumst eiginlega að þeirri niðurstöðu að sumarið væri ekkert endilega tíminn frekar en einhver önnur árstíð eða tímapunktur um ævina. Við erum bara búin að blása sumarið svo mikið upp, þessar fáu vikur sem allt á að gerast. Það á að lifa lífinu þessar fáu vikur á ári, gera allt sem hefur verið látið bíða betri tíma. Merkilegt. Svo enda flestir bara frekar súrir þegar sumri fer að halla.
Ég er samt bara sátt við þetta sumar. Ég hef þroskast gífurlega mikið, hvort sem þið viljið trúa því eður ei;)
Ég er búin að fara til Svíþjóðar og hitta skemmtilegt fólk, knúsa fjölskylduna og fá knús frá þeim, læra, kíkja í búðir, borða fullt af ís og nammi með Maríu, mála eldhúsið og skrifa fullt af væmnum bloggum líka ;) Heimsóknarfjöldinn hér á síðunni hefur alveg margfaldast svo ykkur getur ekki þótt mjög leiðinlegt að lesa vælið og tuðið í mér;) hehehehe
Nú ætla ég að fara að skrúfa niður í vælinu, þetta er orðið alveg gott í bili!
Hafið það gott, mýsnar mínar


9 Comments:
Finnst gaman að lesa "vælið" þitt skvísan þín ;)
síjú
Linda
Hehehe gott að einhverjum líkar væl ;)
Hef sagt þér það svo oft að mér finnst gaman að lesa allt sem þú skrifar. Er líka sammála þér hvað varðar sumarið, ef til vill gerir maður bara allt of miklar væntingar til þess,svo er það bara búið áður en maður veit af. Láttu þér líða vel,Heiða Björg.
Takk Heiða mín :)
Uss þú gerir nú meira en að væla og tuða hérna inni "rýjan" þín :)
Mikið til í þessari pælingu ykkar með sumarið og það sé "tíminn".
Hafðu það gott og farðu vel með þig .. nú verð ég að fara að koma afmælsigjöfinni til Ísaks :P
kv.Ásta
Já Ásta- við erum alltaf á leiðinni að hittast en látum aldrei verða af því. Þetta er einmitt eitthvað sem ég ætlaði mér að gera í sumar en lét ekki verða af. En það kemur dagur eftir þennan dag ;)
hæ sæta flott siða mundu sja mina nubna folk.is/animals_lover miss you
Hey þú ert komin með skróp í aðferðafræði útlendingurinn þinn
Eygló mín það þarf ekki að fara langt til að finna gullmola eins og þig, einungis næsti stigagangur =o) Það er alltaf gaman að lesa pælingarnar hjá þér krúsin mín. Hlakka til að sjá þig eftir NY ferðina long time no see. Kossar og knús María nágranni.
Post a Comment
<< Home