Army of me

Monday, August 20, 2007

Shit.


Þá er komið að uppgjöri.


Próf á morgun og magapínan er orðin ólýsanleg. Það er grennandi að vera í prófum, ég er alveg farin að sjá það ! Skila tveimur stórum verkefnamöppum á morgun og tek próf. Hefst þá handa við að vinna síðustu verkefnamöppuna og klára eitt skilaverkefni til viðbótar..verð að hafa ansi hraðar hendur við það og vona bara að það eigi eftir að ganga smurt.


Úff þetta er búin að vera ógeðsleg törn og ég er þreytt. Búin að vanrækja vini mína og skyldmenni og vona að mér sé fyrirgefið!
Æ elsku hugsið vel til mín í fyrramálið og sendið mér smá skammt af kúristastraumum, ekki veitir af.. ég verð að slefa í það minnsta.
Læt heyra í mér að prófi loknu
Kveðja, Eygló með magapínu

7 Comments:

At August 20, 2007 8:08 AM, Anonymous Anonymous said...

Já þetta er öruggleg búið að vera rosa strembið en þessu er allveg að ljúka og þá bíður bara NY, ekki leiðinlegt það.Hugsa til þín á morgun og alla daga. Þín kænka Heiða Björg

 
At August 20, 2007 12:15 PM, Anonymous Anonymous said...

gangi þér vel í prófinu vinkona. sjáumst svo á miðvikudagsmorgun, er það ekki?

 
At August 20, 2007 12:46 PM, Blogger Eygló said...

Jú Fífa, ég er mikið til í það. Vantar bara ennþá tíma-og staðsetningu. En ég er game í morgunmat með hressum stelpum :)

 
At August 20, 2007 12:47 PM, Blogger Eygló said...

Og svo gleymdi ég...takk elsku Heiða Björg mín :) Knús

 
At August 20, 2007 3:17 PM, Anonymous Anonymous said...

hæ dúlla þú tekur þetta með stæl ég veit það allir mínir bestu straumar eru á leiðinni þúsund knús
gamla í sveitinni

 
At August 20, 2007 3:41 PM, Anonymous Anonymous said...

Hugsa til þín á morgun eins og alla daga, veit þú nærð þessu. Mundu bara að slappa af og anda ofaní maga !
Love you, mamma sín

 
At August 20, 2007 4:55 PM, Anonymous Anonymous said...

Ég treysti því bara að grunnurinn úr bernsku hafi skilað sér í þessu blessaða prófi sem nú er lokið.
Ekki satt?
Kv
Sissa

 

Post a Comment

<< Home