Búið
Hvort sem það var góða grunninum frá Sissu, fyrsta kennaranum mínum á skólagöngunni eða öllum hlýju hugsununum frá fólkinu mínu, nú eða einstaklega vel útilátnu gáfnafari mínu (haha) að þakka, þá komst ég í gegn um prófið án hnökra. Allt sem ég lagði ofur áherslu á fyrir svefninn í nótt, blasti við mér á prófblaðinu í morgun svo ég skrifaði og skrifaði og skrifaði meira. Mér er meira að segja illt í olnboganum.
Þegar ég kom inn í prófið var ég svo stressuð að ég gat ekki haldið á pennanum mínum. Skráði mig í prófið titrandi hendi og það leit út fyrir að ég hefði beðið fimm ára barn að skrifa fyrir mig. En svo lagaðist þetta aðeins og ég hófst handa við að skrifa. Nú er þetta búið og mikið er það gott.
Ég fór svo út í listgreinahús og skilaði verkefnamöppunum mínum í myndmennt og tónmennt, hitti þar kennarana sem voru hinar hressustu. Núna er ein verkefnamappa eftir og eitt verkefni til viðbótar við hana. Ég ætla ekki að hugsa um hana í dag. Í dag ætla ég að gefa mér smá frí, fara í skemmtileg föt og kannski greiða mér um hárið. Svo fer ég upp á deild og svo sæki ég strumpinn minn og geri eitthvað skemmtilegt með honum.
Á morgun fer ég svo aftur að læra. Húrra..


7 Comments:
Vissi að þú gætir þetta eygló mín :D ég hugsaði til þín.
Húrra húrra ég vissi það þarna sérðu bara flott til hamingju.
gamla í sveitinni
knús, hugsaði til þín:o)
Æ takk allar :)
Ég missti aldrei á þér trúna, þú ert og verður alltaf hetja.
Til hamingju og nú er svo lítið eftir.
Knús
Lísa
Loksins fann ég heimasíðuna þína, langaði að þakka þér fyrir bókina! Til hamingju með að vera búin með prófið og næstum því öll verkefnin varðandi skólann :)
Þú ert dugleg stelpa!
Kærar kveðjur frá Árósum, Berglind & co.
Takk Berglind mín :)
Post a Comment
<< Home