Army of me

Monday, September 03, 2007

Fuck it...!!!

Jæja, þá er ég komin heim eftir vel heppnaða ferð til New York. Við fórum fimm saman og einkunnarorð okkar kvennanna tveggja í hópnum voru ,,fuck it". Við létum bara slag standa, straujuðum kredit þegar við átti og slettum úr klaufunum. Fyrir vikið var ferðin skemmtileg og ég bara gleymdi alveg að hafa áhyggjur yfir hinu og þessu :)

Í þessari ferð hef ég til dæmis..


*Verslað
-Og svo verslað aðeins meira. Sonur minn gæddi langsamlega mest á því..


*Fengið skordýrabit
-Vitum ekki hvort það gerðist í dýragarðinum eða á hótelherberginu (silfurskottur..namm) en ég var allavega ekki sú eina sem var bitin.


*Sötrað Karamellu Frappuchino og Cafe latte frá Starbucks og spígsporað upp og niður Manhattan
-Væri sko alveg til í að vita hvað við gengum marga kílómetra! Er allavega búin að fá minn skammt af harðsperrum og blöðrum!


*Fengið sólina í andlitið
-Og brunnið smávegis. Þrjátíu stiga hiti og yfir alla ferðina. Ljúft!


*Farið í háskalegar leigubílaferðir
-Einn leigubílstjórinn var til dæmis að LESA..já LESA á meðan hann var að keyra í brjálaðri traffík! Frekar fyndið þó við værum reyndar svona frekar stressuð á meðan á þessu stóð. Annar leigubílstjóri var að skrifa um leið og hann var að keyra og enn annar villtist með okkur stelpurnar..og var ekki með leyfiskortið sitt sýnilegt í bílnum..hmmm.


*Horft á górillur leika listir sínar
-Górillurnar í Bronx Zoo voru SNILLD. Þær gerðu allt til að fá athygli, til dæmis að banka í glerið á ,,búrinu" sínu (mikið stærra en það sem maður kallar búr) og hlaupa burt á ógnarhraða, slást og glíma og banka í bakið á fólki og fleira skemmtilegt. Jóhanna ferðafélagi hafði á orði hvað það væri fyndið að sjá hvað górillurnar væru í raun líkar okkur í hreyfingu og háttalagi. Hún hafði vart sleppt orðinu þegar tvær þeirra byrjuðu að skíta í lófann á sér og ÉTA lortinn með bestu lyst. Úje beibí.


*Farið á subbulegan bar
-Barþjónninn var ekkert að hafa fyrir því að blanda, bara slumpaði duglega og þefaði svo af blandinu! Sweet


*Borðað heila máltíð með prjónum
-Og meira að segja hrísgrjón og allt! Fórum á æðsilega flottan og góðan japanskan stað..nammi namm..


*Þjálfað lærvöðvana
-Maður sest sko ekki á subbuleg almenningsklósett! *æl*


*Hörfað undan ágengum dúfum og vikið úr vegi fyrir skoppandi íkornum
-Íkornarnir voru æðislega sætir en finnst ég ekki geta sagt það sama um dúfurnar!


*Séð Frelsisstyttuna
-Fórum í bátsferð í kring um styttuna í æðislegu veðri. Það var alveg frábært!

*Villst í New York..
-Oftar en einu sinni. Það er allt svo stórt og svo bara gengur maður í hringi! Alltaf hægt að hlæja að því samt og ég er komin heim í heilu lagi ;)


*Heimsótt söfn
-Við heimsóttum þrjú ólík söfn, hvert öðru áhugaverðara. Met, Museum of national hitory og Moma. Á Moma komst ég að því að allt getur verið list, það er bara spurning um framsetningu og hugsunina að baki..


*Gengið um í Central Park
-Mjög gaman að rölta um í sólinni og sjá mannlífið sem manni fannst stundum eins og klippt út úr bíómynd


*Heimsótt hús Sameinuðu þjóðanna
-Við fengum skoðunarferð um bygginguna. Daginn eftir varð mikið uppþot þegar það fannst taugagas á einni skrifstofunni þar..fjúff
Þessi listi er engan veginn tæmandi. Það er einhvern veginn svo margt sem er ekki hægt að skýra frá á prenti. You had to be there ;) Til dæmis var það golden moment þegar Jóhanna fékk ógirnilegasta mat sem við höfum séð..ætla ekki að reyna að lýsa honum!


Hér í lokin fylgja svo nokkrar myndir..ætla að láta það vera að útskýra þær, þær tala fyrir sig sjálfar:)


Góðar stundir.
Eygló


9 Comments:

At September 04, 2007 2:11 AM, Anonymous Anonymous said...

Mikið rosalega eru þetta flottar myndir! Var atvinnuljósmyndari með í för?

Kv.
Anton.

 
At September 04, 2007 2:29 AM, Blogger Eygló said...

Hehehe já það mætti halda það, minn kæri ;)Nýbakaði áhugaljósmyndarinn sem ég er gift bara rúllaði þessu upp ;)

 
At September 04, 2007 4:11 AM, Anonymous Anonymous said...

Æ hvað þetta hefur verið gaman hjá ykkur hlakka til að heyra ennþá meira kv.Heiða Björg

 
At September 04, 2007 4:14 AM, Anonymous Anonymous said...

Hey gleymdi að spyrja um hrærivélina !!! :) Kv.Heiða Bj.

 
At September 04, 2007 4:15 AM, Anonymous Anonymous said...

Vá það hefur verið alveg frábært hjá ykkur - þokkalega langar mig að fara til NY einn daginn :)
kv.Daldís.

 
At September 04, 2007 5:51 AM, Blogger Eygló said...

Takk fyrir kvittið, kæru frænkur :)
Heyrðu já Heiða Björg, ég fór með hrærivélina í handfarangri en hún var tekin af mér í tollinum... muhahahahaha

 
At September 04, 2007 6:05 AM, Anonymous Anonymous said...

En æðislegt að heyra hvað þið höfuðuð það gott ;D

Ert svo góð í að setja myndrænt fram .. enda frábær penni.

svo held ég áfram að minna á afmælisgjöf sem bíður ;)

kv.Ásta
p.s flottar myndir hjá Antoni :)

 
At September 05, 2007 11:25 AM, Anonymous Anonymous said...

New York, New York! Rosa hefur verið gaman hjá ykkur! Ég kom heim í gær og verð í tvær vikur, við verðum endilega að hittast og skiptast á sögum úr borginni góðu ;-) ...og náttla bara hittast hihihi
knús Tinna

 
At September 06, 2007 5:58 AM, Blogger Eygló said...

Hey Tinna, ég er meira en til í það !! Alltaf gott að rabba um heima og geima við þig, heillin mín :) Finnum okkur stað og stund!

Knús

 

Post a Comment

<< Home