Smá könnun
Jæja, nú skelli ég þessu hér inn þar sem blogg-andleysið umlykur mig þessa dagana. Endilega svarið ef þið mögulega nennið því, alltaf gaman að lesa svona.
1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér eitthversstaðar, myndirðu halda að ég væri á föstu eða lausu?
4. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
5. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
6. Lýstu mér í einu orði.
7. Hvað er mest einkennandi við mig?
8. Hvaða búðir elska ég að fara í?
9. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
10. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?
11. Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?
12. Hvað minnir þig á mig?
13. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
14. Hversu vel þekkiru mig?
15. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
16. Ætlarðu að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?
17. Lokaorð til mín?


2 Comments:
1. Ég er Ásta
2. Já - það ætla ég að vona
3. Ætli ég myndi segja segja á föstu
4. Meðal, gæti alveg þekkt þig betur.
5. Glóda Kjánaprik
6. Einlæg, góð og falleg sál,skemmtileg/fyndin ... sagðiru eitt?
7. Sem manneskju: einlægnin og kjánaprikin sem þú lendir í
8. Pass - þó ég segi innan sviga H&M
9. Bara vel, virkaðir eins og manneskja á minni bylgjulengd
10. Skemmtisögur af sjálfri þér, rautt hár, einlægni, umhyggja, mamma
11. Þú ert góð og flott stelpa,týpa? skemmtilega nördið ;)
12. MSN ;)
13. Vá! þessi er erfið, hvað langar þig í? =)
14. Varstu ekki búin að spyrja að þessu?
15. Nei ég held bara ekki satt best að segja =)
16. Játs!! ;)
17. Haltu áfram að vera þú sjálf - og vinkona mín.
1. Lísa
2. Já, og nokkuð nánar
3. Hmmm held ég myndi halda að þú værir á föstu en nokkuð "pikky" samt.
4. Held ég þekki þig nú bara ansi vel, nóg vel til þess að studum þurftu við hvorug að tala.
5. Öhhhh ég er sko með eitt en ætla ekki að hafa það á prenti.
6. sjúkalegayndislegogeinstökmanneskja.( eitt orð sko)
7. Rauða hárið, tignarlegt fas sem þú veist engan vegin af sjálf samt.
8. WOW hvað má þetta vera langt ? H&M alls staðar í heiminum, Virgin Megastore (eftir NY), forever 21, og svo allar mögulegar barnafatabúðir.
9. Guð ég var svo hrikalega stolt og sagði öllum sem ég hitti hvort sem ég þekkti þá eða ekki "jeg har faet en rödharet lillesöster" og setti upp stórt bros á eftir.
10. óendanleg væntumþykja til þín, listræn, traust, fyndin og einstök eiginkona og móðir.
11. Listamaður, flögrandi sál sem sér alltaf eitthvað nýtt, frábær mamma og einstök systir.
12. Úff...skittles, stuttermabolir með mynd á. Fríkuð föt. Borgargrill minnir mig alltaf á þig líka. Gvöð svo mikið...let me know ef ég á að halda áfram.
13. Ef ég gæti gefið þér eitthvað eitt væri það að þú fengir óendanlega hamingju ásamt því að fá allt það sem hugur, sál og líkami þinn girnast.
14. Held ég þekki þig nokkuð vel, þó þú getir svo sannarlega verið dul á tímum.
15. Hmmm nei ég hef alltaf á endanum ná að byggja upp kjark til að segja þér það sem ég þorði ekki að segja...og eftir á skil ég ekki af hverju ég var ekki að þora fyrst.
16. Já kannski ætti ég að skella þessu inn hjá mér líka bara...enda langt síðan ég hef bloggað.
17. Elska þig hringinn í kringum hnöttin og annan hring eftir það, gæti aldrei án þín verið.
Post a Comment
<< Home