Army of me

Thursday, October 04, 2007

Grátt og meira grátt

Það er til stund og staður fyrir allt. Það eru til dæmis til gullin tækifæri til að trampa í pollum og njóta þess að vera úti í rigningunni sem linnir ekki látum þessa dagana. Hins vegar finnst mér eiginlega komið of mikið af hinu góða.. það verður allt svo grátt og ljótt þegar það rignir upp á hvern einasta dag og þykk þoka liggur yfir öllu.



Ég er búin að hanga heima í allan dag með lasinn pjakk. Hann malar og malar og malar svo aðeins meira. Ég hef vart undan við að svara mjög svo heimspekilegum spurningum og vangaveltum litla mannsins, voða gaman að heyra hvað hann er að pæla þó að stundum verði maður sjúklega þreyttur á því að svara svona flóknum spurningum.


Ég á von á vinkonu í heimsókn. Hún er búin að lofa að klofa yfir draslið hjá mér og líta framhjá því öllu. Ég er nú samt að hugsa um að taka til, búin að þvo nokkrar vélar af þvotti (eins gott, því annars hefði drengurinn sennilega mætt í strigapoka í leikskólann á morgun) og henda fullt af rusli og óþarfa drasli. Mjakast allt saman í rétta átt.


Lærdómurinn er löngu fokinn út í verður og vind. Held hann hafi bara gufað upp með andláti síðustu heilasellu. Nú eru þær tvær eftir og þær eru farnar að elta hvora aðra í hausnum á mér. Mig vantar einhver góð ráð til að virkja þær og fá þær til að vinna saman, þetta virkar ekki alveg með þessari taktík!


Mig langar í ræktina. Búin að styrkja Hreyfingu aaaðeins of lengi... roðna bara við tilhugsunina. Jedúddamía. Alltaf getur maður fundið einhverjar afsakanir, það vantar ekki !


Vá hvað þetta er annars einstaklega ógeðslega leiðinlegt blogg. Anton minn kallar mig stundum Tuðmundu þegar sá gállinn er á mér. Ég held að sú nafnbót fari mér bara afskaplega vel í dag!

Tuðmunda kveður úr Mýrinni og lofar frísklegra bloggi áður en frýs í neðra.

P.s Myndina hér fyrir neðan var ég að búa til á Photobucket.com - mjög skemmtilegt:) er hún lík mér? hehehehe

6 Comments:

At October 04, 2007 10:37 AM, Anonymous Anonymous said...

Gló Gló mín bloggið er nú ekki leiðinlegra en það að ég skellihló
alein inní draslherbergi,þú ert ekki ein um að eiga drasl ég er komin yfir að láta það pirra mig væri þá löngu orðin brjáluð. þetta með sellurnar væri bara ekki gott að drífa sig í ræktina og vita hvort þær virki ekki á eftir nærri viss besta kveðja og hundrað knús gamla í sveitinni

 
At October 04, 2007 10:53 AM, Blogger Eygló said...

Jú Erla, það væri sennilega ráð að drösla sellunum tveimur með sér í ræktina og reyna að lífga þær við, þetta náttúrulega gengur ekki svona ;)

Gott að þú gasat hlegið.. en ENN BETRA að það er líka drasl hjá þér:)

 
At October 04, 2007 11:19 AM, Anonymous Anonymous said...

hehe ég fer alltaf að taka til þegar ég ætla að setja í lærigírinn, samt er nú drasl hjá mér en var að klára að þvo úr óhreinatauskörfunni, ekki veitti af, ég þyrfti sjálf á góðum ráðum til að halda mér við efnið og læra og ekki er ég með lítinn veikan pjakk til að hugsa um en ég er með kisu sem getur alveg truflað mann allsvakalega, það er svo gaman að knúsa kisu. Knús og bros til þín í grámanum.

 
At October 04, 2007 11:31 AM, Blogger Eygló said...

Takk, Heiðdís mín :)

 
At October 05, 2007 3:35 AM, Anonymous Anonymous said...

við virðumst vera annsi margar sem eigum þetta drasl sameiginlegt og að leiðast rignig. En nú er að koma helgi og þá á að taka á þessu með draslið og þvottakörfuna sem er yfir full, á mínu heimili. Ætla líka að fara að drífa mig í ræktina andinn hlýtur að fara að koma yfir okkur. Eitt enn þetta var ekkert leiðinlegt blogg þau eru það aldrei hjá þér Eygló mín,knús í klessu Heiða Björg.

 
At October 05, 2007 7:48 AM, Blogger Eygló said...

Takk elsku Heiða Björg :) en ég hef aldrei séð drasl hjá þér!

 

Post a Comment

<< Home