Ég held ég sé teiknimyndapersóna
Ég komst að því bara í dag þegar ég steig út úr bílnum og rann á bananahýði. Nú er ég semsagt búin að komast að því að það er alveg hægt að renna snilldarlega með því að stíga á bananahýði- teiknimyndirnar eru ekkert að skrökva!
Í öðrum fréttum þá læsti ég mig aftur úti. Viky vinkona var svo elskuleg að keyra mig upp í vinnu til Antons þar sem ég hékk og beið eftir því að hann kláraði að vinna. Þegar ég kom heim fattaði ég að ég var búin að vera með lykilinn í skólatöskunni allan tímann. Snilld, ekkert nema snilld.


8 Comments:
Gló Gló hvað er þetta með þig og lykla kannski þú ættir bara að hafa þá hangandi um hálsin eins og litlu krakkarnir sem eru ein heima :) Kveðja Heiða Björg
Já Heiða Björg, það fyndnasta við þetta er það að lyklarnir mínir ERU í bandi og ég er stundum með þá um hálsinn eins og litlu börnin.. :/
Þú ert svo yndisleg
kv.
Hinu megin við hólinn
algert yndi og ekkert annað.
love you
Lísa
Þú ert algjört yndi Eygló :D.
Frábærust !!
kv. Linda
Takk Linda mín - right back at you !
Mér finnst þú laaangflottust!
Kv. Berglind
Hehehe æ takk Berglind mín :) sömó :)
Post a Comment
<< Home