Army of me

Wednesday, October 17, 2007

Lúðaskapur..endalaus lúðaskapur

Eins og alla þriðjudaga, var ég uppi á spítala í gær.

Konan í afgreiðslunni, fúl eins og vanalega, afgreiddi mig frekar fálát á meðan ég góndi út í loftið í eigin heimi eins og mér einni er lagið. Skyndilega heyri ég rödd segja ,,Hver er kennitalan þín?" Mér fannst svolítið spes að hún skyldi allt í einu ekki finna kennitöluna mína en byrja samt sem áður að þylja upp kennitöluna mína með hárri raust. Þegar ég er búin með fyrrihlutann stynur konan : ,,ehh..nei..sko hún var að spyrja.." og bendir á samstarfskonu sína sem er að tala í símann. Ó meeeen. Hversu mikill lúði er hægt að vera ? Að vísu örlaði fyrir brosi á vörum frúar Fúlu svo þetta var ekki alveg til einskis.

4 Comments:

At October 17, 2007 4:07 AM, Anonymous Anonymous said...

Líf þitt er eins og ágætis "sit come" þáttur ... eigðu góðan dag

 
At October 17, 2007 5:02 AM, Blogger Eygló said...

Ég veit! Ekki að ástæðulausu sem ég var að spá í að fara að græða á þessu (í gríni þó)..að vísu var ég að spá í að markaðssetja líf mitt sem dramatíska sápuóperu með sitcom ívafi. Mig langar svo að vera með mikið, blásið hár og leika svona hádramatískt hlutverk..hafði semsagt hugsað mér að blása þetta allt saman pínulítið upp.. ;)

 
At October 17, 2007 5:50 AM, Anonymous Anonymous said...

Já gætir orðið millijóner með þátt í USA ;)
Guð já þú tækir þig vel út í "Guiding Light/Bold and the Beautful" múnderingu .. muhahaha

 
At October 17, 2007 6:26 AM, Blogger Eygló said...

Já ég held nefnilega að það sé alveg málið, Ásta :)

 

Post a Comment

<< Home