Bloggedíblogg
Þetta blogg er orðið ansi slappt og tíðindasnautt. Það er bara ennþá alveg sjúklega mikið að gera í skólanum og svo þarf að sinna heimilinu og slíku líka svo að eitthvað verður að vera útundan - og þá er skást að það sé bloggið !
Héðan er ennþá allt gott að frétta samt, ég er ekkert að tapa jákvæðninni og ætla að halda í hana fram í rauðan dauðann þó að skólinn sé að murka lífið úr öllum og skammdegið sé svolítið yfirþyrmandi stundum. Ég er farin að bíða eftir snjónum.. ég ELSKA snjó. Svo hlakka ég líka svo mikið til að fara að baka piparkökur með strákunum mínum og versla jólagjafir og dóla mér með systur minni og skreyta og setja upp seríur og gefa stubbnum mínum frí til að kúra og drekka heitt kakó í mömmufangi.
Já ég get ekki beðið! Svo ótrúlega margt sem ég get látið mig hlakka til að gera framundan!!
Hafið það gott í ösinni ! Ég lofa að koma með gott blogg þegar prófatíðin er afstaðin!


2 Comments:
Hæ Hæ alltaf jafn góður penni.
Skil vel að þig hlakki til að dúlla þér með þeim litla en gaman að láta hafa eitthvað að hlakka til
gangi þér allt í haginn risa knús
gamla í sveitinni
Takk takk, Erla mín :)
Post a Comment
<< Home