Þetta er allt að koma..
Ég á eitt próf eftir. Eitt fokkings próf og svo er komið jólafrí. Ég get ekki beðið. Hlakka til að gefa litla krúttumúsanum mínum (mússí mússí) frí til að kúra og útrétta og drekka kakó og..og..og..
Ég á eftir að kaupa slatta af jólagjöfum. Ég nenni samt ekki að vera í einhverju stressi, mér finnst jólastress eitt það tilgangslausasta ever, þrátt fyrir að ég sé með stressaðri manneskjum á jarðríki þegar sá gállinn er á mér. En nei, jólastress er ekki mitt vandamál.
Jájá ég er bara í góðu jafnvægi, hlakka til að halda jólin með fjölskyldunni minni í vonda veðrinu og rigningunni sem fylgir svo oft jólunum.
Af hverju hætta tónlistarmenn annars ekki að semja jólalög um hinn draumkennda hvíta snjó ? Hvernig væri að syngja bara um jólaregnið í staðinn? Þá kannski færi að snjóa...
Hafið það gott, dúfurnar mínar


6 Comments:
Sko til þetta er allveg að taka enda og þá er bara gleði,gleði,gleði,heyrumst á morgun kv.Heiða Björg
Æi ég veit ekki með jólalögin , myndu þau hljóma eins...?
"I'm dreaming of a RED Christmas
Just like the ones I used to know
Where the treetops glisten,
and children listen
To hear UMBRELLA bells in the WIND
I'm dreaming of a RAINY Christmas
With every Christmas card I write
May your days be merry and bright
And may all your Christmases be WET"
Og
"Oh the weather outside is frightful,
But the fire is so delightful,
And since we've no place to go,
Let It RAIN! Let It BLOW! Let It RAIN!"
o.s.frv.
Og hvað yrði um aumingja Snæfinn snjókarl..?
Hvað um það, þá verða jólin allavega alltaf yndisleg, hvít, rauð, blaut eða hál, og undirbúningurinn ekki síðri ;-)
Gangi þér vel á lokasprettinum!!
knús
T
Haha góðir punktar, Tinna! Já þetta er kannski satt hjá þér..kannski betra að tilbiðja bara snjóinn áfram þó hann komi ekki..nema þá í nokkra klukkutíma í einu í mesta lagi *pirr*
Og Heiða Björg= jább, heyrumst og sjáumst því ég er BÚIN Í PRÓFUM!! ÍHAAAAAAA :D
Til hamingju með frelsið!!!! Hlakka til að sjá þig í snjónum...djók rokinu og rigningunni...!
knús og klemma
Tinna
Til hamingju með próflokin. Ég er að stóla á hvít jól því við verðum á Akureyri um jólin, þar er alla vega oftar snjór á jólunum en fyrir sunnan en sjáum til með það:o) Það verða þá bara rok og rigning áramót með fjúkandi flugeldum á Selfossi:o) Knús krúttan mín
Takk fyrir knúsin og hamingjuóskirnar, stelpur mínar :)Jájá, rigning eða ekki, það koma jól hvort heldur sem er !
Post a Comment
<< Home