Vonandi höfðuð þið það gott um jólin. Ég hafði það allavega mjög gott með fjölskyldunni og það sést á útlitinu og vigtinni líka..shit bara. Segi nú ekki annað.
Og nú eru bara áramótin framundan. Við erum orðin svo gömul að við ætlum að vera bara 3 saman, litla fjölskyldan og borða góðan mat, kíkja í smá partý í heimahúsi með snúðinn með okkur og fara svo heim og borða nammi og horfa á Dvd. Enda held ég að áramótadjamm sé ofmetið. Mér finnst ekkert spennó við að fara niður í bæ í margmennið og bíða svo lengi lengi eftir leigubíl sem kostar helmingi meira en vanalega. Bjakk bara.
Annars hef ég ekki rassgat að segja. Búin að fá úr úr 4 áföngum og það kom allt bara vel út. Bíð enn eftir 2 einkunnum og það eru einkunnirnar sem ég var minnst hrædd við svo þetta er í lagi held ég.
Nú ætla ég að skríða undir sæng með nýju glæpasöguna mína. Ahh ég elska að vera í fríi.


0 Comments:
Post a Comment
<< Home