Gleðileg jól
Nú hef ég heimsótt leiði látinna vina og heilsað upp á krúttin í hjúkrunarheimilinu. Nú mega jólin fara að koma. Feðgarnir eru úti að hrista jólaspenninginn aðeins úr litla manninum, biðin er orðin svolítið erfið þó að hann hafi að vísu verið mjög góður alla aðventuna og látið alla pakka alveg eiga sig.
Ég ætla að hafa þetta stutt að þessu sinni - má samt til með að segja ykkur að ég myndast ákaflega illa og fékk staðfestingu á því í dag svo um munar. Um daginn kom nefnilega ljósmyndari heim til að taka myndir af mér fyrir Fréttablaðið. Í dag birtist svo ritdómurinn sem var alveg ágætur - en engin mynd. Mér finnst þetta alltsaman ákaflega kómískt og er reyndar bara mjög fegin að það kom engin mynd því ég var ekki í sérstöku brosskapi þennan morgun sem ljósmyndarinn kom í heimsókn.
Svo já..engar jólamyndir í ár, takk. Enda er ég með bólu á hökunni sem þyrfti sennilega að fá sér stól við matarborðið.
Ég vona að þið eigið öll eftir að eiga gleðileg jól, dúllurnar mínar stórar og smáar. Megi nýja árið færa ykkur kærleik og gleði.
Glóda


1 Comments:
Gleðileg jól mín kæra :) Það er nú gott að það er hægt að kæla litla manninn niður í snjónum og sá stóri hefur örugglega haft gaman af. Á mínum bæ er verið að reyna að halda jólatrénu lóðréttu, sá stutti er duglegur að hreynsa skrautið af neðstu greinunum og togar vel í tréð til að ná skrautinu almennilega af helst þarf greinin að fylgja með ;)
Lifið heil og við sjáumst.
ps. pakkinn bíður eftir Ísak Aron uppi á skáp svo Birnir Smári hjóli ekki í hann. :D
Post a Comment
<< Home