Hvatvísi eða framtakssemi ?
Á laugardaginn fórum við í bíltúr, litla fjölskyldan og enduðum inni í húsgagnabúð. Við komum út þaðan 10 mínútum síðar, þá búin að kaupa sófa og stól! Á sunnudegi fór gamli, risavaxni sófinn í nytjagám Sorpu og gamla þrekhjólið (sem var hvort eð er orðið að fatastand fremur en æfingatæki) fékk að fljóta með. Í kvöld kemur nýji sófinn í hús og mikið hlökkum við til :) Þá verður loksins eitthvað pláss í stofunni okkar! Jibbí dibbí deiiii.
Næst á planinu er að kaupa ísskáp og losa okkur við borðstofuborðið en það er seinni tíma vandamál. Við höfum 5 1/2 mánuð til að búa til pláss í litlu íbúðinni. Þetta reddast..gerir það það ekki alltaf ?
Þetta er afar ólíkt okkur. Við fórum nefnilega á rúntinn til að skoða fjölskyldubíl og þegar við komum heim vorum við búin að kaupa sófa. Á góðum díl samt.
Og nei. Við skítum ekki peningum.


3 Comments:
Til hamingju með nýja sófann, svona á að gera þetta ekkert verið að velta þessu fyrir sér. Verð að fara að koma í heimsókn og sjá hvað það er orðið fínt hjá ykkur. Kv.Heiða Björg
Til lukku með nýja sófan.
Oohh dem! Ég sem var að vonast til að geta fengið lán hjá þér! heheh
-Ásta
Takk stelpur;) Já þið þurfið bara báðar að kíkja í kaffi og skoða sófann ;)
Post a Comment
<< Home