Var það í síðustu færslu sem ég lofaði bót og betrun í bloggmálunum ? Æ ég man það ekki alveg en ég virðist allavega ekkert vera alveg að standa mig í stykkinu. Það er nóg að gera annars, skólinn að fara á fullt með sín stóru verkefni og líf og fjör á heimilinu líka.
Drengurinn dafnar vel, gullkornin svoleiðis hrynja upp úr honum og hann er símalandi allan daginn.. stundum væri samt gott að eiga hljóðkút svona við höndina!!
Anton minn átti afmæli síðasta mánudag svo við fórum í verslunarleiðangur þar sem ég keypti nýjar spjarir á manninn og eldaði svo nautakjöt um kvöldið..namm. Svo í tilefni bóndadagsins í gær eldaði ég lambalundir. Konan alveg að missa sig í eldhúsinu, ha ?
Reyndar er Ísak frekar hissa þegar hann sér mömmu sína í eldhúsinu. Minnir mig á það þegar Anton var ekki heima og sá stutti spurði um pabba sinn. Þegar ég svaraði því til að hann kæmi svolítið seint heim úr vinnunni rak litli maðurinn upp stór augu og sagði með angist : ,,en mamma, hvað eigum við þá að borða??" - Segir allt sem segja þarf um dugnað minn í eldhúsinu...


6 Comments:
bara að kvitta fyrir inniltið ;)
- Ástan
Takk, Ástan mín :)
Ég er að hugsa um að kvitta líka, og er ekki batnandi mönnum/konum best að lifa. Ástarkveðjur
mamma
Takk fyrir kvittið mamma, ég elska að fá kvitt :)
Alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt,haltu áfram á sömu braut kv.Heiða Björg
Takk, Heiða mín :)
Post a Comment
<< Home