Army of me

Monday, February 25, 2008

Við fórum öll þrjú í sumarbústað um helgina. Ég ætlaði að slappa af og sofa og borða og læra. Ég gerði allt nema það síðastnefnda. Eða kannski er ég að skrökva, ég lærði smá líka en hefði mátt vera allavega helmingi duglegri. En skítt með það, ég nenni ekki að spá í það. Bústaðarferðin var allavega næs, fengum smá svaðilför á föstudeginum þegar við óðum skaflana upp í nára (getið ímyndað ykkur hvernig sá stutti staulaðist í gegn !) og lágum svo í leti lengi lengi. Næs.

Það er leynivinavika í skólanum. Ég elska leynivinaleikinn, mér finnst svo gaman að vera í felum og gefa skemmtilegar gjafir :) Uppáhaldið mitt. Ég fékk ótrúlega fyndna gjöf frá mínum leynivini, ramma með umferðamerkja-óléttusögu og við hana hangir smokkur, nammi og ýmsar skemmtilegar orðsendingar. Hugmyndaríkur leynivinur! :)

Framundan er viðburðarík vika. Sónar, mæðraskoðun, lærdómur og fleira og fleira og fleira..

Já ég er andlaus eins og vanalega. Kannski maður bloggi frekar þegar það er eitthvað að frétta.

Hafið það gott, turtildúfurnar mínar!

2 Comments:

At February 26, 2008 5:31 AM, Anonymous Anonymous said...

MUHAHAHAHHA já ég er rosalega hugmyndaríkur leynivinur ;) Farðu nú vel með þig í dag snúlla :)

 
At February 26, 2008 6:24 AM, Blogger Eygló said...

Hahaha úhh spennandi! Ég hef samt sterkan grun um hver þú ert... ;)

 

Post a Comment

<< Home