Gamla gamla
Nennirinn minn fer ekki í gang í bráð og í sannleika sagt held ég að hann hafi hreinlega gefið upp öndina í verkefnatörninni fyrir áramót.
Ég er að reyna að gera það upp við mig hvort ég stefni að útskrift í vor eða ekki fyrr en um haustið. Samviskan og þrjóskupúkinn í mér segja mér að reykspóla í gegn og bara klára þetta svo ég geti verið áhyggjulaus síðsumars með börnin mín sem þá verða tvö. Hins vegar segir letidýrið í mér að það sé allt í lagi að fresta ritgerðinni fram í október ef allt annað sé klappað og klárt. Ég held samt að ég fari að fordæmi þrjóskupúkans og reyni að göslast í gegn. Sennilega verð ég sáttari ef ég ákveð að gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana.
Þetta var þankahríð í boði Eyglóar!
Ég er svolítið farin að tútna út og barnið sparkar á hverjum degi. Ég finn samt að þetta er lítill letipúki, sefur mikið og sparkar óttalega pent. Mun penna kríli heldur en stóri bróðir sem var nánast farinn að limlesta móður sína á sama tíma meðgöngunnar.
Já..í haust verðum við hjónin komin með tvö börn. Við erum komin á steisjon bíl. Núna finnst mér ég formlega orðin að gamalli kellingu.


7 Comments:
Elskan þú ert ekki ein um þetta með ritgerðina, sama vandamál hér !! við verðum að sparka í okkur NÚNA !!! við erum á lokasprettinum og klárum þetta, ekki að gefast upp núna af öllum önnunum !!! :)
Heyrðu ætli þú sért ekki bara með pena dömu í mallakút :D:D:D
knús mín kæra (eins og þú segir alltaf við mig) :):)
Hæ Hæ ekki gamla, bara að semja við þrjóskupúkann hann er stundum góður það verður svaka gamann þegar allur skóli verður búinn og bara verið að stússa við smáfólkið
og engva ritgerð. Veit þú klárar þetta með stæl.
Knús og kossar frá gömlu úr sveitinni
Takk Erna og Erla.. já það er líklega ekkert annað í boði en að reyna að massa þetta..eða í það minnsta merja þessa ritgerð ;) Erna, tökum þetta bara í nefið, og þá er málið dautt. Shit hvað það verður ljúft að geta sagt að maður sé BÚINN í skólanum *dreym*
það er ekkert eins ljúft og að skila lokaritgerð, trúðu mér.
og steisjon er ekkert, ég mundi allavega ekki fara að hafa áhyggjur fyrr en smájeppi fer að hljóma gáfulega.
Haha já Fífa..kannski það sé rétt. En það sorglega er að við vorum fyrst að spá í smájeppa! *svitn*
Ég myndi láta þrjóskupúkan ráða í þetta skiptið - ég veit að þú getur þetta! Ímyndaðu þér ljúfa lífið að dóla þér með afkvæmin og engar áhyggjur! Í staðinn fyrir að ritgerð og ritgerðarskil hangi yfir þér eins og svart ský ;)
Og steisjon er bara hið besta mál ... við erum þá í sama stíl .. hehehe
-kv Ástan
Ekki spurning Gló Gló litla þú klárar skólann í vor. Og svo er bara dúlleri með börnunum í sumar enginn ritgerð sem hangir yfir þér. Þá verður þú alltaf með samviskubit þegar þú ert að sinna krílinu og stóra bróður og finnst að þú eigir að vera að læra ef þú klárar þetta ekki áður en krílið fæðist. Smá ræða hér á ferð hihi kveðja Heiða Björg
Post a Comment
<< Home