Héðan er allt gott að frétta ennþá. Lítið, en gott. Vinnan við lokaritgerð er á fullu og gengur ágætlega svona þegar á heildina er litið þó að heimildaöflun hafi gengið hálf brösuglega framan af.
Núna er ég uppi í rúmi að maula mjólkurkex og drekka mjólk með, alveg eins og ekta larfar gera. En krílið er allavega ánægt með þetta og sparkar án afláts..eða kannski eru þetta mótmæli ? Hvur veit.. voða gott samt að geta geymt kexið á vömbinni:)
Nú eru 8 vikur eftir af skólanum. 8 vikur og svo verð ég frjáls kona..eða svo gott sem ! Þá þarf ég allavega bara að hugsa um fjölskylduna mína og mikið verður það gott :)
Ég hef lítið að segja, læt bara tvær myndir fljóta með í lokin.
Fallegastur í himingeimi
Eygló hin mjög svo andlausa kexæta kveður í bili


5 Comments:
Mikið er kúlan þín sæt!
og vá bara 8 vikur eftir að skólanum, mikið hlakka ég til!! :) verður ljúft að þurfa ekki að hafa skólann hangandi yfir sér og bara dúllast með litla kútinn sinn :D
Ohh já segðu, Sigurlaug! Þetta er aaalveg að verða búið - we can do it! :)
Haha! Þú orðar allt svo pent Eygló mín, Vömb! Haha, þú ert yndisleg :)
Kv. Heiða bekkjarsystir
Já ég veit, Heiða..dömugenin eru ekki fyrir alla! :D
ohhhh hvað bumban þín er gordjösss!! *bráðn* (: og auðvitað prinsinn á heimilinu líka..offkors (: 8vikur...það er ekki mikið (: njóttu þess krútt! looove Gullan
Post a Comment
<< Home