Allt of mikið að gera!
Mig vantar hljóðeinangraðan klefa til að garga í ! Er þetta eitthvað djók eða ?
Af hverju hummar maður hlutina fram af sér og hrekkur ekki í gang fyrr en letin fer að bíta mann í rassgatið ?
Djöfull þoli ég ekki að hafa svona mikið að gera. Ég gæti aldrei orðið deildarstjóri eða leikskólastjóri, ég vinn greinilega ekki vel undir álagi, svo mikið er víst!
Samt eru bara 2 skitnir mánuðir eftir. Tveir aulamánuðir og fullt af verkefnum.
Og samt gef ég mér tíma til blogga!! Forgangsröðunin er greinilega alveg tipp-topp, that´s for sure.
En well..engum um að kenna nema sjálfri mér. Hnuss.


2 Comments:
Þetta reddast :) Er það ekki okkar sér íslenska sýn á lífið og veistu það er bara nokkuð til í þessu. Áður en þú veist af þá verður þú fullkomin tveggjabarna móðir og leikskólakennari í fæðingarorlofi. Á göngu um Mýrina með barnavagn, lítinn pjakk skoppandi og borðandi ís :) Kveðja Heiða Björg
Já..þetta er skemmtileg sýn! Ég ætla að hafa þetta í huga, Heiða Björg ;)
Post a Comment
<< Home