Skóli og fréttir
Góðan dag
Og enn snjóar. Og ég nenni ekki út í þetta veður. Svosem ágætt þar sem ég þarf að læra og læra og læra aðeins meira. Djöfull getur það samt orðið þreytt! Ég var í skólanum í gær í einungis 13 og hálfan klukkutíma. Vel úldin þegar ég kom heim. Nú er ég komin aftur í skólann, nema hvað. Skemmtilegt kvöld framundan..
En in other news þá þarf ég ekki að þegja lengur. Voða er það gott. María, mín kæra vinkona ætlar að vera samferða mér á meðgöngunni og koma með kríli í haust. Kannski verður það stelpa til að leika við stelpuna mína ! Svo sumarið lofar góðu.. við eigum eftir að geta étið ís með góðri samvisku í sólinni..og svo get ég arkað með vagninn og hún með bumbuna..og að lokum getum við arkað saman með vagnana og stóru strákana okkar í eftirdragi.
Já þetta verður gaman..enn og aftur til hamingju, mín kæra og krúttlega María :)


2 Comments:
Takk mín kæra :D Já það verður sko ekki leiðinlegt í sumar hjá okkur akkurat þegar þú ert búin að eiga þá byrja ég í sumarfríi og þá verður sko stuð á okkur. ÍS og aftur ís og enn aftur ís.... við verðum flottustu tveggja barna mæðurnar í borginni ;)
Heyrumst sæta spæta Kossar og knús handan hornsins....
Kveðja María "frænku"vinkona ;D
Ójá og við skulum sko STANDA VIÐ ÞAÐ! Síðasta sumar með þér var æði - mig langar í annað svona sumar, takk fyrir :D
Post a Comment
<< Home