Army of me

Saturday, March 01, 2008

Hormónablogg

Ég þoli ekki ...

*að nágrannar mínir skuli alltaf þurfa að spila tónlist fyrir alla blokkina. Tveir vel fullorðnir karlmenn sem virðast ekki geta hlustað á neitt annað en argasta píkupopp á fullu blasti. Það er eitthvað skrýtið við það.

*að búa í blokk þar sem framkvæmdir allra í blokkinni varða heimilisfriðinn.


*að barnamatseðillinn á veitingastöðum skuli alltaf innihalda svona ógeðslega sveittan og viðbjóðslegan mat! Af hverju er t.d ekki bara hægt að panta ,,bleikan fisk" (uppáhald Ísaks) eða einfalda súpu?! Garg!

*að lokaverkefnið og öll hin verkefnin gangi svona hægt fyrir sig. Mig langar svo að klára þetta og hætta að hugsa um þennan skítaskóla!

*að það skuli endalaust hlána, frjósa, snjóa og rigna til skiptis..búin að eyðileggja fullt af skóm í þessu tíðarfari og er alltaf kalt á tánum *pirr*


*að ég skuli ekki geta rifið mig upp á rassgatinu og þrifið almennilega fyrst ég nenni ekki að læra

*að ég skuli labba um eins og mörgæs, aðeins gengin 21 viku! -Hvernig verð ég í lokin?? *shit*


Já ég held að óléttuhormónið sé aðeins farið að ná til heilans, svei mér þá.


Annars er sumt líka skemmtilegt.. mér finnst til dæmis skemmtilegt að..


*ég eignast prinsessu í júlí og verð þá tveggja barna mamma (ósla gömul!)

*bráðum verður skólinn búinn og þá verð ég komin með háskólagráðu og þarf ekki að spá í skólamál strax aftur.

*kallinn minn skuli þola þessar hormónasveiflur í mér og hlæja með mér í pirringsköstunum (get nefnilega sem betur fer hlegið að því hvað ég get orðið pirruð)


*systir mín keypti fullt af stelpufötum og eitthvað handa stóra stráknum mínum líka í Litháen *tilhlökkun*

*mamma og pabbi koma heim frá Kanarí í vikunni


*bráðum fer að vora og þá fer þessi drullugi snjór og hættir að skemma skóna mína

Gæti skrifað meira..sérstaklega í fyrri hluta bloggsins en ætla að hætta þessu rausi núna samt..komið gott af pirringi í bili. Langar samt að láta eina mynd fljóta með hérna rétt í lokin. Veit ekki hvort þið hafið húmor fyrir þessu (jú ég veit að pabba mun finnast þetta fyndið) en ég ætla að láta vaða, við pabbi verðum þá í versta falli bara tvö sem hlæjum ;)



Jæja, hormónabomban kveður í bili ! Óver and át og allt það..

8 Comments:

At March 01, 2008 2:33 PM, Anonymous Anonymous said...

Ég hefði örugglega hlegið ef ég hefði skilið myndina haha

 
At March 01, 2008 3:08 PM, Blogger Eygló said...

hahaha Hulda..ég vil ómögulega útskýra hana svona á opnum vef ;) skal útskýra fyrir þér á msn :)

 
At March 03, 2008 5:13 AM, Anonymous Anonymous said...

hahaha ég skildi þetta, vona að það segi ekkert um mig... :-/ annars er nú alveg spurning hvort svona myndir eigi að liggja svona á klámbekk...ég meina glámbekk...! ;-)
knús
t

 
At March 03, 2008 5:27 AM, Blogger Eygló said...

Hahaha Tinna, já það er alveg spurning sko :D skildi sneiðina..muhahaha

 
At March 04, 2008 11:54 AM, Anonymous Anonymous said...

Hey gaman að lesa að það sé stelpa í mallanum þínum! :)

 
At March 04, 2008 4:42 PM, Blogger Eygló said...

Híhí takk Sigurlaug :)
Jább, lítil Hello Kitty stelpa á leiðinni muhahaha

 
At March 07, 2008 6:47 AM, Anonymous Anonymous said...

Hahaha snilldarmynd. Ég verð að fá að stela henni á bloggið mitt! ;)
-Oddný bumba

 
At March 07, 2008 8:36 AM, Blogger Eygló said...

Já Oddný mín, go ahead ;) gott að ég er ekki eini dóninn sem skilur þessa mynd hehe;)

 

Post a Comment

<< Home