Army of me

Saturday, March 29, 2008

Bumbuhittingur

Í gær fór ég á minn fyrsta bumbuhitting á ævinni. Ég fór aldrei á svona hittinga þegar ég gekk með Ísak en ákvað að skella mér núna þar sem Fanney bekkjarsystir var að fara. Hún var meira að segja svo elskuleg að koma og sækja mig svo ég þurfti ekki að fara ein. Enda hefði ég sennilega ekki þorað að mæta ein, kjúklingurinn sem ég er.

Ég komst að því að þetta er bara fínn hópur, við erum á svipuðum aldri og eigum margt sameiginlegt, rosalega margar til dæmis að ganga með barn númer tvö svo þetta var bara gaman. Ég reyndi meira að segja að vera dama en það fór bara eins og það fór.

Ég reyndi til dæmis að láta ekki allar taka eftir því þegar ég dreifði bláberjum um allt gólf..og ég var ósköp hljóðlát þegar ég laumaði ananasbitanum í ruslið sem hafnað hafði á gólfinu en ekki disknum mínum. Hins vegar held ég að flestar hafi tekið eftir því þegar skeiðin mín datt af disknum og hafnaði í sófanum.

Ég gæti haldið áfram..en ætla ekki að gera það því þá gæti ég komið upp um eitthvað meira aulalegt. Fæst orð bera minnsta ábyrgð - er það ekki alltaf sagt annars ? ;)

Núna sit ég með tölvuna við eldhúsborðið og reyni að massa lokaritgerðina. Það gengur svo vel að ég er farin að blogga..einmitt. Spurning um að svissa aftur yfir í ritgerðarskjalið þó ég nenni því engan veginn.

Magnað laugardagskvöld í Mýrinni góðu.

Hafið það gott öllsömul.. klaufska frúin kveður í bili !

3 Comments:

At April 01, 2008 3:57 PM, Anonymous Anonymous said...

Hvað er að sjá þetta, þú skrifar á laugardegi og engin hefur haft tíma til að kvitta. Allavega ástarkveðja frá mér og ég hlakka til að hitta þig á fimmtudag.
mamma

 
At April 02, 2008 3:53 AM, Anonymous Anonymous said...

hahahaha!

Við eigum greinilega eitthvað sameiginlegt!!! Ég er þekkt sem brussa dauðans.. og tengdarfjölskyldunni minni finnst ofboðlega gaman að gera grín að því þegar ég missi hnífapörin í gólfið, missi matin framan á mig o.s.frv.. en maður lærir bara að lifa með þessu hehehe ;)

hafðu það gott
kveðja
Ína Björg

 
At April 02, 2008 4:48 AM, Blogger Eygló said...

Takk mamma mín :) hélt að allir væru búnir að gleyma mér!

Ína: Haha já það getur verið ágætt að vera brussa, þá er maður allavega að skemmta einhverjum á meðan! :)

 

Post a Comment

<< Home