Army of me

Wednesday, April 02, 2008

Mest sexy

Við fórum eftir vinnu að kaupa púða sem ég get sofið með.

Ég kom heim með langan, grænan dreka úr Ikea . Jább, ég sagði DREKA.

Ég verð sko mest sexy.. Anton hló frekar mikið að mér með drekann í fanginu og hlakkar til að vakna og horfa í augun á honum! Æ ég þarf púða milli hnjánna og undir bumbuna, er orðin alveg ferleg í grindinni og kjaga um allt eins og mörgæs, og ég er bara í 26.viku !

Hlakka mikið til að kúra með drekann minn í nótt. Hann er fallega grænn.. og svo er svona eldur í munninum hans. Og Ísak er búinn að fá leyfi til að ættleiða hann þegar litla breddan er komin í heiminn.

2 Comments:

At April 04, 2008 4:20 AM, Anonymous Anonymous said...

Sé þetta allveg fyrir mér hihi,annars bara takk fyrir síðast. Kv.Heiða Björg

 
At April 04, 2008 5:35 AM, Blogger Eygló said...

Takk sömuleiðis, Heiða Björg :)

 

Post a Comment

<< Home