Army of me

Monday, May 26, 2008

Hreiðurgerð og Hello Kitty

Jæja, ég er hætt að pirrast yfir stóru rassalaga dældinni á bílnum okkar og pappírarnir eru farnir frá okkur svo nú er bara að bíða og sjá. Ég vona að þessi pappírsmál gangi upp því annars þarf ég líklega að fara að tína dósir í miðbænum um helgar. Ekki alveg draumurinn en einhvern veginn verður maður að bjarga sér, ha!

Allt gott að frétta héðan annars, ég er bara að dóla mér heima og þykist alltaf ætla að taka til en það verður eitthvað lítið úr því samt. Þetta gerist ekki að sjálfu sér og ég skil bara ekkert í því! Það vantar alla svona "hreiðurgerð" í mig. Mér finnst allar konur tala um þetta hreiðurgerðartímabil en ég hef eitthvað farið á mis við það. Eins upplifði ég aldrei "blómatímabilið" sem átti að vera á milli ógleðinnar og þreytunnar. Þetta rann allt saman hjá mér svo ég er búin að vera þreytt og mygluð og ljót from day one hehe. Það bara tilheyrir stundum og ég get alveg lifað með því.


Meðgangan gengur annars bara vel kannski fyrir utan almenna þreytu og stirðleika og satanískan brjóstsviða sem EKKERT slær á. Það er alveg sama hvað ég geri og hvernig ég er, ég er alltaf með brjóstsviða og mikið ferlega er ég orðin leið á því *pirrrrr*.


Mamma var að koma frá útlöndum og auðvitað með fullan poka af fallegum fötum á bæði börnin okkar. Takk mamma :* Mamma varð samt svolítið smeyk þegar ég sagðist samt ætla að taka með okkur blátt dress upp á fæðingardeild til vonar og vara híhí. Maður veit jú aldrei. Hvíti pííínulitli Hello Kitty skokkurinn kemur samt líka með og "daman" okkar fer í hann ef hún er ekki með tippi.

9 Comments:

At May 27, 2008 2:56 AM, Anonymous Anonymous said...

Hæ Eygló ætla nú bara að segja þér að þú ert hvorki ljót eða mygluð. Mér finnst þú einmitt svo flott ófrísk kona svona há og grönn bara með flott kúlu og hananú ! Litla daman verður ótrúlega fín alla daga hjá þér í öllu bleiku fötunum og það verður stóri bróðir nú líka í sínum töffara fötum. Kv.Heiða Björg

 
At May 27, 2008 3:21 AM, Blogger Eygló said...

Æ takk Heiða mín, mikið ertu sæt við mig! :)

 
At May 27, 2008 8:18 AM, Anonymous Anonymous said...

Sæl mín kæra :) Ég tek undir með fyrsta ræðumanni. Tekur þig svo vel út svona ólétt, blómstrar alveg með kúluna þína sparkandi til hægri og vinstri hehe. Litla hello-kitty daman verður sko sætust af öllum á leiðinni heim af fæðingardeildinni í skokknum sínum með fallegu fjölskyldunni sinni.
Kossar og knús upp til þín vinkona.
Kv. María Ösp.

 
At May 27, 2008 8:51 AM, Anonymous Anonymous said...

Hey hey
Sammála þeim báðum.
Fer þér svo vel að vera ólétt, blómstrar... (hey allaveganan á myndum)
:)
Hreiðurgerðin hefur líka gleymst hjá mér, í öll skiptin...
kveðja í bæinn...
Sigrún Heiða

 
At May 27, 2008 9:08 AM, Blogger Eygló said...

Takk elsku María mín :) I needed that! ;)

Og Sigrún Heiða: mikið svakalega er ég fegin að ég er ekki sú eina sem fæ ekki þessa hreiðurgerðartilfinningu!! :)

 
At May 27, 2008 10:05 AM, Anonymous Anonymous said...

Hreiðurgerð hvað er það? Ég þvoði bara fötin og skellti þeim ofan í kommóðu, fór eina ferð í apótekið og keypti nokkra hluti þar, hitt kom svo bara svona með tímanum :)
Brjóstviði!! úff átt alla mína samúð, þvílíkur viðbjóður!!! En sem betur fer hverfur hann um leið og krílið kemur :)
Og ég er alveg sammála öllum hérna á undan mér, þú lítur ótrúlega vel út, með rosalega fallega kúlu og blómstrar alveg, var einmitt að skoða myndirnar mínar frá 16. maí og þú varst svo flott í blómakjólnum :)

 
At May 27, 2008 12:37 PM, Blogger Eygló said...

Ohh takk Sigurlaug..já ég tróð mér í blómakjól til að fá smá svona blómatímabils-tilfinningu hehehe. Já ég ætla að kíkja í apótekið þegar nær dregur og þvo kannski nokkrar flíkur líka en ég sé ekki fyrir mér allsherjar framkvæmdir hér eða skápaþrif eða klórþrifin gólf eða eitthvað...

 
At May 28, 2008 6:16 AM, Anonymous Anonymous said...

Hey það eru til konur sem strauja ÖLL fötin fyrir litlu krílin...
Sé mig í anda, 35+ vikurá leið, straujandi 30 samfellur og föt....
ÓnEI, hef annað að gera, og það er að liggja og hvíla mig!! hehehe

kv Sigrún bumba Heiða

 
At May 28, 2008 6:59 AM, Blogger Eygló said...

Hahaha nákvæmlega, Sigrún !! ;) Maður verður nú að safna orku fyrir krílið ;)

 

Post a Comment

<< Home