Army of me

Friday, May 02, 2008

HJÁLP!!!

Kasóléttur búrhvalur óskar eftir starfi í júní, en bara júní.



Starfið þarf að vera létt og löðurmannlegt, má ekki fela í sér langar setur eða stöður og alls enga líkamlega áreynslu. Vinnutíminn þarf að vera sveigjanlegur og klósett-pásur nokkuð margar á hverja klukkustund.



Áhugasamir hafi samband við Hafrannsóknarstofnun.



Nei ég meina...seríöslí.. hvar fá kasóléttar konur með grindargliðnun vinnu?? Nú er svo komið að það má ekki koma ,,gat" frá síðustu námslánum fram að fæðingarstyrknum. Ef þetta umrædda gat kemur í júní þá fæ ég ekki krónu í fæðingarstyrk. Þetta er ekki alveg að gera manni auðveldara fyrir !!



HJÁLP!!!

17 Comments:

At May 02, 2008 10:04 AM, Anonymous Anonymous said...

Hmmm þetta er ekkert grín, spurning hvað er hægt að fá fyrir þig að gera sem fellur að öllum skilyrðunum sem eru sett *fliss*.
En ég hef augu og eyru opin...aldrei að vita nema eitthvað falli til.

Knús
Lísa

 
At May 02, 2008 10:38 AM, Anonymous Anonymous said...

ertu ekki að grínast!!! jesús þetta kerfi er náttla bara rugl!! en ef þú myndir skipta námslánsgreiðslunum í fleiri greiðslur og fá líka í júní? ég meina þú útskrifast ekki fyrr en þann 14? Þetta land er ótrúlegt, fólki er bara gert erfiðara fyrir að eignast þessu yndislegu börn...

 
At May 02, 2008 11:38 AM, Blogger Eygló said...

Já finnst þér þetta ekki raunhæf skilyrði, Lísa? hehehe

Sigurlaug: já smá galli að ég spáði ekki í þetta áður en krílið kom undir og gerði bara ráð fyrir að ég færi að vinna í maí eða júní :S svo síðasta greiðslan var að koma inn í dag. Sweet. Já..klikkað kerfi!

 
At May 03, 2008 3:04 PM, Anonymous Anonymous said...

Algerlega fáránlegt! En vá hvað við hlógum þegar að við vorum að tala um þessa auglýsingu í mars!!!

 
At May 05, 2008 4:35 AM, Anonymous Anonymous said...

Hehe :D Held það verði slegist um að fá þig í vinnu :D.

En annars, færðu ekki vottorð um að þú getir ekki unnið ?

kv. Linda

 
At May 05, 2008 5:08 AM, Anonymous Anonymous said...

Ótrúlegt þetta kerfi hef ekki allveg hugmyndir um hvar þú gætir fengið vinnu sem uppfyllir skilyrðin en maður veit aldrei....
kv.Heiða Björg

 
At May 05, 2008 6:30 AM, Blogger Eygló said...

Já þið segið það stelpur..ekki spennandi starfskraftur semsagt ? ;)

Jú Linda ég get fengið læknisvottorð, sérstaklega út af grindargliðnuninni en sá peningur er 20 þúsund á mánuði..það eru leikskólagjöldin og þá er allt búið..hmm. Langar í monní monní ;)

 
At May 05, 2008 7:48 AM, Anonymous Anonymous said...

Skal hafa augu og eyru opin - geturu ekki fengið smá "auka" vinnu á leikskólanum? Bara eitthvað svona til málamynda?

Þetta hverfi er sko allt annað en hvetjandi fyrir fólk á barneignaraldri og námsmenn í þokkabót!

Gangi þér vel skvísa

kv. Ástan

 
At May 05, 2008 8:30 AM, Blogger Eygló said...

Hehe Ásta ég efa það að ég geti gengið inn í einhvern random leikskóla í þessu ásigkomulagi og heimtað vinnu í mánuð ;)

En well..þetta reddast..vonandi ;)

 
At May 06, 2008 2:08 AM, Anonymous Anonymous said...

Ok hvað var ég að hugsa hverfi? Ég meinti náttúrulega kerfi!

OK-hélt að þú værir komin með vinnu á leikskóla eftir útskrift og gætir kannski fengið smá vinnu þar.

(Þekki eina sem var með álíka skilmála, reyndar ekki ólétt, sl sumar og hún fékk vinnu hjá íbúðum aldraðra við að baða gamla fólkið)

- Ásta

 
At May 06, 2008 2:08 AM, Anonymous Anonymous said...

Ok hvað var ég að hugsa hverfi? Ég meinti náttúrulega kerfi!

OK-hélt að þú værir komin með vinnu á leikskóla eftir útskrift og gætir kannski fengið smá vinnu þar.

(Þekki eina sem var með álíka skilmála, reyndar ekki ólétt, sl sumar og hún fékk vinnu hjá íbúðum aldraðra við að baða gamla fólkið)

- Ásta

 
At May 07, 2008 2:19 AM, Anonymous Anonymous said...

æj snúllan mín. Þetta er eins og ég lent í. sem betur fer þá er ég sjálfstæð þannig að ég gat skráð á mig vinnu í einn mánuð þótt að ég væri ekki að vinna...aðeins að misnota aðstöðu mína (:

það eina sem mér dettur í hug er rólógæsla. getur örugglega fengið eitthvað svoleiðis tímabundið (: kannksi eftir hádegi eða eitthvað. gangi þér vel vel snúll (:

knus og kram....gullan

 
At May 07, 2008 4:44 AM, Blogger Eygló said...

Takk Gullan mín :-) Já þetta reddast, við erum að vinna í þessu !

 
At May 08, 2008 8:56 AM, Anonymous Anonymous said...

já þetta kerfi er sko ekki að hjálpa manni þegar maður þarfnast þess mest !!
En hey... hvað með vinkonuna á laugaveginum :P hún myndi nú örugglega gera allt til að fá þig í vinnu og þá kemst hún líka heim til að fá sér sherry, eða hvar það hvítvín ??!!!

Kveðja María nágranni sem er ekki svo grönn lengur ;)

 
At May 08, 2008 1:41 PM, Blogger Eygló said...

Hahaha já María, nokkrir hafa bent mér á þessa ,,lausn" en ég er ekkert brjálæðislega spennt, svona af gefinni reynslu hehe.

 
At May 15, 2008 1:59 PM, Anonymous Anonymous said...

hæ.
er búin að reyna að commenta oft oft oft og aldrei kemur það inn...
sé til hvort þetta fer...

Er þetta krefi er svo sannarlega ekki hliðhollt okkur;/

 
At May 16, 2008 12:30 PM, Anonymous Anonymous said...

Er ekki að fara að koma nýtt blogg ????

Veit þú ert samt alltaf duglegri en ég.....og maður venst því.


knús Lísa

 

Post a Comment

<< Home