Army of me

Saturday, April 19, 2008

Vængbrotin!

Ég vaknaði í nóttinni og skutlaði mínum ástkæra Antoni í flug. Hann er að fara á námskeið á vegum vinnunnar í örfáa daga og svo fæ ég hann aftur heim til mín. Það var þó ekki að sjá á ýktum viðbrögðum mínum. Ég lét eiginlega meira eins og ég væri að skutla honum í stríð í Víetnam og ætti ekki von á því að hitta hann heilan á húfi framar, svo mikil var dramatíkin! Ég hef bara aldrei vitað annað eins.

Auðvitað elska ég manninn minn rosa mikið og hann er líka besti vinur minn og hann hefur alltaf staðið sem klettur við bakið á mér..en þetta var kannski aðeins over the top.

Enda hringdi grey Anton í mig þegar ég var á leiðinni heim frá Keflavík og sagði "ástin mín, þetta er eitthvað sem við eigum eftir að hlæja að eftir nokkra mánuði!".

Og vitiði.. ég held það sé rétt hjá honum. Ég ætla að skella skuldinni á hormónana.

8 Comments:

At April 20, 2008 9:27 AM, Anonymous Anonymous said...

Æi þú ert algjör krúttmunda!

 
At April 20, 2008 1:57 PM, Blogger Eygló said...

Híhí þú meinar væntanlega hormónabomba dauðans ;)

 
At April 21, 2008 1:29 AM, Anonymous Anonymous said...

Það er bara gott að sakna til að vita hvað maður á og hefur. Þú hefur okku öll hin í kringum þig þangað til og alltaf.

Knús
Lísa

 
At April 21, 2008 11:42 AM, Blogger Eygló said...

Takk Lísan mín :*

 
At April 21, 2008 1:47 PM, Anonymous Anonymous said...

tíhí, krúttlan mín :* ætli ég sé þá komin nokkra mánuði frammúr ykkur því ég hló að þessu strax *roðn*
þú ert yndi það breytist ekki og Anton er svo ríkur að eiga þig að.
Heyrumst mín kæra -María-

 
At April 21, 2008 1:56 PM, Blogger Eygló said...

Hehe já ég er alveg farin að hlæja að þessu núna sko ;) svo það tekur líklega ekkert nokkra mánuði að jafna sig á þessu hehe.

 
At April 22, 2008 12:47 PM, Blogger Anna said...

nei nei þetta venst fljótt. Tók nokkur svona köst á sínum tíma og þá alveg án hormóna. Vandist snemma á að fara með sólgleraugu í flug.

 
At April 22, 2008 5:54 PM, Blogger Eygló said...

Já góður punktur, Anna! Spurning um að fara að fá sér sólgleraugu!! Ég ætla að tékka á því :)

 

Post a Comment

<< Home