andlaust blogg!
Eiginlega verð ég að útskrifast núna. Ég fann nefnilega mjög fínan kjól sem ég get með góðu móti troðið mér í núna. Hins vegar á hann eftir að rifna utan af mér ef ég reyni það eftir tvo mánuði, það er alveg klárt mál.
Spurning hvort Seglagerðin Ægir taki að sér að sauma svona útskriftardress á búrhvali..hmm það má alveg athuga það.
Annars sé ég að ég lofaði spennandi bloggi þegar ég bloggaði síðast. Verst að ég hef í raun ekkert að segja svo ég verð líklega að svíkja þetta loforð. Héðan er bara same old í fréttum, allt gott að frétta samt. Við bara höfum það huggulegt í litlu íbúðinni og spáum í það hvernig við getum mögulega rúmast hér fjögur svo vel sé og svona. Stubburinn litli er spenntur og kátur og sama krúttið bara :)
Segjum þetta bara gott í bili
Eygló andlausa


1 Comments:
Þröngt mega sáttir stija, er það ekki bara viðeigandi ?
Það er til nóg að kjólum og við finnum kjól, svo má alltaf gera þá mera spennandi þó hann sé venjulegur í búðinni.
Þetta verður rosa gaman.
Knús
Lísa
Post a Comment
<< Home