Ó ljúfa líf!
Allar einkunnir eru í höfn og ég fékk þrjár 9 og eina 8 og ég er sátt :D Útskrift eftir 8 daga og þá fæ ég gráðuna mína!
In other news þá var þetta þvagprufumál nú meira ruglið. Eftir að ég fór með nýju þvagprufuna í ræktun (þessa sem svo var send upp á spítala..eða átti að vera send þangað) beið ég í viku án þess að fá nokkur svör. Svo hringdi ég í morgun og fékk þá þau svör að það yrði engin ljósmóðir við fyrr en eftir viku! Næs. Nújæja, eftir dúk og disk fæ ég símaviðtal við hjúkku sem tjáir mér það að þvagprufan sé týnd!! Great. Þá er ég beðin um að ná í nýja beiðni, skila nýrri prufu og fara með hana sjálf niður á sýkladeild. Mín ekki sátt.
Nú mamma kippti í taumana og spjallaði við ljósu sem spjallaði við aðra ljósu svo úr varð að ég fór í heimsókn á meðgöngudeild. Þar kom í ljós að sýkingin er farin og líkaminn hefur því bara unnið á henni sjálfur, voðalega er ég dugleg :) Hins vegar kom það í ljós að ég er með næringarskort og orðin þurr..og ég skil ekki hvernig það getur gerst!
Svo ég er búin að borða fullt, fullt í kvöld.. ;)
Semsagt- sýkingin er farin og ekki þörf á neinum sýklalyfjum, ég þarf bara að borða og drekka og drekka og borða..og ég massaði skólann og útskrift á næsta leyti. Ég get ekki annað en verið bara nokkuð sátt og ánægð með lífið!


11 Comments:
SNILLINGUR!!!!!
Bara glaðlegt og yndislegt blogg;)
Fær mann til að brosa.
Innilega il hamingju, með ALLT :)
Góða helgi ;)
Farðu vel með þig og borða borða borða hehehe...
He he njótu þess að borða og borða og..... ekki víst að þú fáir oft svona skilaboð þó það hafi reyndar aldrei verið vandamál hjá þér annað en hjá fitubollunni mér hihi. En bara til hamingju með þetta allt. Kv.Heiða Björg
TIL HAMINGJU skvíz! Ég vissi að þú gætir þetta! Æðislegt að það hafi allt gengið svona vel =)
Og njóttu þess að b-o-r-ð-a og drekka ;)
-kv ásta
Híhí takk allar ;) Já nú er það bara átkeppni næstu vikurnar..hver nennir í pylsukappát? ;)
Halló dúllan mín Risa Risa RIsa stórt knús frá okkur öllum hef ég ekki alltaf sagt það ha ha.
Þetta er æðislegt vertu bara dugleg að borða og drekka svo litla prinsesan fái fullt og þú líka bið að heilsa strákunum þínum
gamla í sveitinni
Takk Erla mín ;) já ég er í átmaraþoni þessa dagana. Lillan fær samt alveg nóg, hún er bara að éta allt frá mömmu sinni ;)
Vá til hamingju bestan mín!!! Lífið verður nú varla ljúfara en að fá toppeinkunnir og skipun um að borða og drekka!!
Hlakka til að sjá þig eftir rúma viku... ;-)
knús
T
Vá þetta er ekkert smá flott hjá þér frænka! Til hamingju með þennan flotta árangur. Ég hugsa til þín í sólinni þann 14.nk. Kem svo og knúsa þig þegar ég kem heim aftur. Bestu kveðjur, Daldís.
Takk Tinna og Daldís :)
Skemmtu þér vel úti Daldís! Og Tinna- hlakka miiiiikið til að hitta þig krúttlan mín :):)
Auðvitað vinnuru bara á þessu sjálf !! snillingurinn sjálfur, hvort sem er skóli eða vesælis-sýking þá massaru það sko alveg *stórtbros*
Til lukku krúsí og svo förum við nú bara að fara að fá okkur feitar steikur fram að fæðingu HEHE....
Kveðja úr breiðholtinu María.
Hehehe já María, ekkert grasfæði neitt..muhahaha
Post a Comment
<< Home