
Hvað segið þið, lít ég út fyrir að vera alveg about to pop ? Fæ þessa spurningu nefnilega ansi oft, stundum oft á dag ef ég hitti mikið af fólki. Suma daga finnst mér ég alveg vera gjörsalega að springa en svo aðra daga finnst mér þessi vömb bara alveg temmileg svona í ljósi þess að það eru einungis 5 vikur til stefnu- gætu allt eins orðið 3..eða 7. Spurning hvenær krílinu þóknast að kíkja í heiminn.
Eins og sjá má er Ísak allavega orðinn spenntur ;)
Kveðja, Eygló
14 Comments:
Ó nei mér finnst þú vera langt frá því að "fara að springa" ... ég verð að viðurkenna að mér finnst þú bara frekar pen .. og krúttuleg með kúluna þína.
Held að þessi spurning sé bara "standard" ef kona er ólétt - eða mér finnst það :P
- Ásta
Já Ásta, það gæti verið málið sko..um leið og það er komin kúla hlýtur bara að vera komið að fæðingu..haha. Mér finnst þessi spurning alltaf pínu skondin sko ;)
Æ en krúttleg mynd og eins og ég hef sagt áður ert þú bara svo fín með þína fínu kúlu. Kv.Heiða
Takk, Heiða mín :)
Hæ hæ Eygló :)
Þetta er ótrúlega falleg mynd af ykkur mæðginunum :)
Ég tek nú bara undir með þeim sem hafa kommentað á undan, mér finnst þú mjög pen og lítur ofsa vel út :) Hlakka til að sjá þig á laugardaginn svona blómlega og sæta :)
Bestu kveðjur
Hjördís Kennó
Æ takk Hjördís mín :) Hlakka líka til að sjá þig á laugardaginn þegar við kveðjum skólann með stæl ;)
Hrikalega sæt mynd.
Knús
Lísa
þú ert flottasta ólétta kona sem ég hef séð, og mamma þegar hún gekk með þig.
Lísa: Æ takk múslan mín! :* þetta var fallega sagt *bráðn*
Tek undir með fyrri ræðumönnum og finnst þú líta rosalega vel út. En kannast við svona spurningar, ég er að hugsa um að láta prenta bol á mig sem stendur ,, þetta eru ekki tvíburar" , nokkrir sem halda að ég sé alveg komin á steypirinn, pínu pirrandi sko. Hlakka til að sjá þig á laugardaginn.
Sigrlaug Íris
Ha? Á steypirinn? Þá væri þetta ansi nett barn hehe. Já þetta er líklega bara vaninn þegar ófrísk kona er annars vegar! Hlakka líka til að sjá þig á laugardaginn, Sigurlaug Íris, bumulínur munu ráða ríkjum í útskriftinni híhí :)
þetta er æðisleg mynd!!! :) og já tek undir með fólki hérna á undan þetta er bara klassísk komment.... Þú lítur sko rosa vel út!! Hlakka til að sjá þig á laugardaginn.
kv. Sigurlaug Björk fyrrv.bumbulína og nú stolt móðir :)
Takk Sigurlaug mín :) Já hlakka líka til að sjá þig á laugardaginn :-)
Eygló mín, mér finnst þú bara flott. Ég ætla að óska þér fyrirfram til hamingju með laugardaginn og útskriftina.
Hvenær ertu skráð?
Ég mæli með 07.07. Eins og ég hef áður sagt þér er Auður mín fædd þann dag...og hún er alvöru kona!
En sama hvenær verður....gangi þér vel!
Hæ hæ
Er nú búin að lesa þessafærslu nokkrum sinum, gleymdi bara að kvitta :)
Þú ert svo fallega ólétt, alveg blómstrandi og líður greinilega vel ;) ÆÐI!
Post a Comment
<< Home