Army of me

Saturday, June 28, 2008

Tifandi tímasprengja

Mér líður eins og tifandi tímasprengju hérna.
Ég er komin í farbann, má ekki fara út fyrir bæjarmörkin og helst ekki vera ein á ferli. Ef vatnið fer eins og staðan er í dag þarf ég nefnilega að leggjast niður og hringja á sjúkrabíl, mjög spennandi eða þannig. Lillan er nefnilega sauðþrá eins og foreldrar sínir og neitar að skorða sig.

Við ætluðum einmitt að vera á ættarmóti þessa helgina en urðum að slaufa því vegna farbannsins. Ísak fór hins vegar kátur og reifur og skemmtir sér konunglega á ættarmótinu, er úti allan daginn og bankar bara á tjöld, tjaldvagna og húsbíla og fær að koma í heimsókn. Hann kann þetta, drengurinn. Svo eru líka nokkur börn til að leika við svo þetta er paradís fyrir unga drengi.

Við skelltum okkur aðeins út áðan, hjónin og versluðum heimferðarföt á litlu og nokkrar snyrtivörur í töskuna sem fer með upp á fæðingardeild. Nú styttist óðum í fæðingu og við vitum náttúrulega ekkert hversu stuttan tíma við erum að tala um svo það er betra að vera tilbúinn!

Í kvöld er planið að grilla og horfa svo á video og borða heitan brauðrétt. Nammi namm

Annars hef ég ekkert spennó að segja núna en vildi bara svona aðeins láta vita af okkur.

Kveðja frá tímasprengjunni!

10 Comments:

At June 28, 2008 12:31 PM, Anonymous Anonymous said...

Vonandi verður snúllan góð við foreldra sína og er ekkert að drífa sig of mikið í heiminn - og snýr sér rétt ;) Meiri prakkarinn sem er á leiðinni greinilega =)

Láttu nú stjana við þig Eygló mín og hafðu það sem best á síðustu metrunum - er orðin voða spennt að sjá krúsluna.

-Ásta

 
At June 28, 2008 4:56 PM, Anonymous Anonymous said...

hæ besta...ég skellti mér í hm og babygap um leið og ég lenti í london og skemmti mér konunglega ;-) hlakka til að kíkja í heimsókn með afraksturinn hehehe...kem heim á þriðjudag, læt heyra í mér og vonandi ákveður daman að halda kyrru fyrir í bumbunni þangað til..kannski að hún noti bara tímann og stilli sér upp við rásmarkið, hvernig væri það?...knús...t

 
At June 28, 2008 6:48 PM, Blogger Eygló said...

Takk, Ásta mín :)

Já Tinnsla, þetta hljómar verulega spennandi :) Hlakka til að heyra í þér, sætan mín !!

 
At June 29, 2008 7:56 AM, Anonymous Anonymous said...

Elsku strumpurinn minn!! Já, vertu nú bara róleg og góð og vonandi kemur strympa litla bara á réttum tíma og ekkert vesen. Hugsa til þín hinumegin við völlinn.
kv
Símon strumpur

 
At June 29, 2008 9:49 AM, Blogger Eygló said...

Ohh takk, Símoninn minn :) Já ég ætla að reyna að halda gleðinni hérna og vera þolinmóð með tásur upp í loft. Svo hlýtur litla breddan að ryðjast út einhvern tíma fyrir haustið allavega.

 
At June 29, 2008 12:27 PM, Anonymous Anonymous said...

Ég sem hlakkaði svo til að sjá ykkur á ættarmótinu fyrst ég komst ekki í afmælis- og útskriftarveisluna! Bjargaði þó málunum að hitta Ísak og knúsaði nokkrum sinnum fyrir ykkur öll :) Hafðu það sem allra best, Daldís.

 
At June 30, 2008 1:43 AM, Anonymous Anonymous said...

Jiiiii
Ætlaru bara að vera búin á undan mér?? ;)

Farðu vel með þig og segðu lillu að skorða sig!!!! heheh

kv Sigrun Heiða

 
At June 30, 2008 2:30 AM, Blogger Eygló said...

Já, hundfúlt að missa af þessu, Daldís :/ ég kemst vonandi næst hehe. Ég reyndar missti af ættarmóti pabba megin síðast því ég var bara nýbúin að eiga Ísak. Kannski ættarmót séu ekki my thing ;)

Sigrún Heiða: Nei ég skal hundur heita ef ég fæði á undan þér. Ég held að ég sé ein af þessum konum sem gengur lengi með. Kannski er ég bara fíll!

 
At June 30, 2008 2:57 AM, Anonymous Anonymous said...

Já Eygló ykkar var sárt saknað af ættarmótinu en Ísak lék við hvern sinn fingur. Farðu vel með þig og nú er best að fara að spíta í lófana og fara að klára litlu bleiku peysuna ,bestu kveðjur Heiða Björg

 
At June 30, 2008 4:33 AM, Blogger Eygló said...

Híhí Heiða Björg..þó peysan verði ekki tilbúin þegar grúsla fæðist held ég að hún verði ekkert ber ef marka má kommóðuna sem er troðfull af einhverju bleiku og mjúku ;)

 

Post a Comment

<< Home