Army of me

Thursday, July 17, 2008

Ennþá Barbapapa

Rosalega finnst mér gaman til þess að hugsa að fólk sé að fylgjast með blogginu mínu og sé spennt með mér. Það lætur manni bara líða eins og pínu celebrity muhaha.

Takk fyrir öll skemmtilegu kommentin, elskurnar mínar, og takk fyrir sms-in og símhringingarnar líka ;) Ég mun senda sms þegar krúslan fæðist og setja inn bloggfærslu við fyrsta tækifæri líka.


Nú er ég semsagt gengin 3 daga framyfir og allt með kyrrum kjörum. Ég fékk reyndar verki í gærkvöldi sem stóðu svolítið fram á nótt en svo datt allt í dúnalogn svo ég sofnaði og vaknaði verkjalaus. Maður bara vonar að þetta hafi samt gert eitthvað gagn.


Ég fór í mæðraskoðun í morgun og það lítur allt vel út, blóðþrýstingurinn reyndar orðinn í hærra lagi og kominn bjúgur en það er svosem eðlilegt svona alveg undir lokin. Ég er búin að þyngjast helst til lítið að mati ljósunnar en þetta sleppur alltsaman, ég verð þá bara vonandi fljótari að ná af mér Barbapapa-lúkkinu eftir fæðingu. Talandi um Barbapapa- ég er skuggalega lík honum í dag í bleika kjólnum mínum. Og þetta var ég bara að fatta rétt í þessu ! Svei mér þá!!


En já..allavega. Ég fékk tíma hjá ljósmóðurinni eftir viku...heila viku. Og ef ég verð ekki farin af stað fyrir þann tíma sagðist hún ætla að reyna að gera eitthvað til að ýta á eftir henni. Þá á hún væntanlega við að panta í gangsetningu og ýta við belgjunum.


Allir hríðarstraumar vel þegnir - ég fíla ekki hríðir en ég fíla afraksturinn svo þetta er á sig leggjandi !

21 Comments:

At July 17, 2008 6:48 AM, Anonymous Anonymous said...

:)
Veit hvernig þér líður, það er ósköp notalegt að fá alla þessa athygli og stuðning!
Og hvað þá ef allir senda hríðarstrauma... :)
Gangi þér vel, segji núna 19 júlí (veit ég skipti um skoðun);)

 
At July 17, 2008 7:18 AM, Anonymous Anonymous said...

Hæ hæ, gaman að lesa nýtt blogg :) ég kíki mjög oft hérna inn til að athuga stöðuna :) ég er viss um að skottan kemur áður en þú átt að mæta í skoðun næst.....vona það allavega innilega :) trúi því að það sé ekkert sérstaklega skemmtilegt að bíða svona, annars er maður svo fljótur að gleyma þegar krílið er komið í hendurnar á manni ;)
Gangi ykkur sem allra best :) ...og takk fyrir kvittið á síðuna hjá gormunum mínum :)
Bestu kveðjur
Hjördís

 
At July 17, 2008 8:46 AM, Blogger Eygló said...

Takk stelpur :) já þetta bara hlýtur að fara að bresta á! Sigrún, mér líst betur á nýju dagsetninguna hehe

 
At July 17, 2008 9:16 AM, Anonymous Anonymous said...

Mér finnst og hefur alltaf fundist Barbapapi sætur. Svo ég er þess alveg fullviss um að þú ert svaka sæt í bleika kjólnum. Alla vegana fannst mér þú sæt í bleiku peysunni í gær eins og alltaf.

Já ég er svaka spennt að bíða...og þegar maður bíður og bíður þá virðist þetta svo ógurlega langt...samt er ég ekki með bumbubúann í mér, svo ég get ímyndað mér hvernig þér líður.

Love you tons,
Knús í klessu
Lísa

 
At July 17, 2008 10:16 AM, Blogger Eygló said...

Híhí takk Lísa mín- ég er voðalega eitthvað bleik þessa dagana! Enda einu skórnir sem ég kemst í fallega bleikir svo ég verð að vera í stíl! ;)
Já þessi bið er hundleiðinleg.. en það eru samt bara max 11 dagar í skottuna, ég verð sett af stað 28.júlí ef hún verður ekki búin að koma sér í heiminn þá..svo það styttist!

 
At July 17, 2008 2:46 PM, Anonymous Anonymous said...

hæ snúllan mín. var að skoða síðuna hans Ísaks og vá hvað þú ert bjútífúl svona ólétt (: Ó já, hríðar eru ekki notalegar en VÁ það sem þú munt fá í hendurnar er SVOOOO þess virði (: Njóttu síðustu óléttu daganna og ég hlakka til að sjá litluna svona "outside of the belly" (:

knús og kram, "joros vinkonos" (:

 
At July 17, 2008 2:47 PM, Anonymous Anonymous said...

hæ snúllan mín. var að skoða síðuna hans Ísaks og vá hvað þú ert bjútífúl svona ólétt (: Ó já, hríðar eru ekki notalegar en VÁ það sem þú munt fá í hendurnar er SVOOOO þess virði (: Njóttu síðustu óléttu daganna og ég hlakka til að sjá litluna svona "outside of the belly" (:

knús og kram, "joros vinkonos" (:

 
At July 17, 2008 2:49 PM, Anonymous Anonymous said...

einmitt, þetta varð nottla að koma 2svar sinnum... (: langaði að bæta við að 20 júlí er nottla góður dagur.....er haggi??? :) :)

luv....gullan

 
At July 17, 2008 4:16 PM, Anonymous Anonymous said...

langar bara að segja knús! er með netfeimni og ritstíflu þessa dagana svo ég enda alltaf á að skrifa ekki neitt...en ég hugsa mikið til þín og ég skal bæta hríðarstraumum við (ekki það að ég viti hvernig þeir eru en geri mitt besta ;-) )...og hér er sem sagt KNÚS!!!
love u lots
t

 
At July 18, 2008 3:00 AM, Anonymous Anonymous said...

Bara smá kvitt hérna og svo verðum við bara að fara að vonast eftir "Barbabrellu" og litla skottan fædd ! Hafðu það gott Eygló mín knús,knús,Heiða Björg

 
At July 18, 2008 4:23 AM, Blogger Eygló said...

Takk fyrir knúsin og hríðarstraumana, stelpur :)

Hehe Gulla, eini dagurinn sem ég var eiginlega búin að segja að ég vildi ekki eiga á, er einmitt 20.júlí svo það ætti kannski ekkert að koma á óvart ef lillan kíkir út þann dag! :)

 
At July 19, 2008 1:24 AM, Anonymous Anonymous said...

hæ sæta!!

en hvað það er spennandi að það sé alveg að koma að þessu.. þetta styttist og styttist .. verður komið áður en þú veist af. en já ég skal senda þér hríðarstrauma.. hlakka svo til að frétta af því þegar dúllan er fædd.. fylgist alltaf regluleg ameð hérna þó svo ég kvitti ekki alltaf
knús og kossar
kveðja
Ína Björg

 
At July 19, 2008 3:48 AM, Anonymous Anonymous said...

kvitti kvittt....
sífellt meira spennandi :o)

 
At July 19, 2008 6:42 AM, Blogger Eygló said...

Takk, Sigrún Heiða og Ína ;)

Fimm dagar framyfir..þá eru í mesta lagi 9 dagar í lilluna...9 laaaangir dagar...

 
At July 19, 2008 2:39 PM, Anonymous Anonymous said...

sagna þin sendu mer post fuglar@visir.is etta er iris sem var 32 a.er með nytt msn. svo siða min er http://girlpuzzle.blogcentral.is/

 
At July 20, 2008 4:01 AM, Anonymous Anonymous said...

fylgist með....
byrja og enda daginn á að kíkja hvort lillan sé lögð af stað :)

 
At July 20, 2008 8:26 AM, Anonymous Anonymous said...

Til hammó með ammó elskan.
Love you
Knús
Lísa

 
At July 20, 2008 10:19 AM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með ammmlið sætan mín!
knús
T

 
At July 20, 2008 11:23 AM, Anonymous Anonymous said...

Ammæli!!!

GEGGJAÐ!
Til hamingju með afmælið sæta!

vonandi ertu að hafa það ógó gott og ferð svo af stað eftir að fara slappað svo vel af ;)

 
At July 20, 2008 2:42 PM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með daginn :)
kv. Hjördís

 
At July 20, 2008 3:49 PM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með daginn sæta frænka! Ég hlakka svakalega mikið til að sjá nýjustu frænkuna þegar hún loksins kemur í heiminn. kveðja, Daldís.

 

Post a Comment

<< Home