Jæja, þá er afmælisdagurinn minn að renna sitt skeið þetta árið. Skottan kom ekki í dag og leyfði mér því að eiga minn dag í friði ;) en nú má hún líka alveg fara að láta sjá sig, allir dagar í boði núna :)
Ég hef átt góðan dag, feðgarnir hafa stjanað við mig og svo kom fullt af fólki í heimsókn þrátt fyrir að ég hafi ekki ætlað að halda upp á afmælið. Eins gott að Anton var búinn að fara í bakaríið ;) Ég fékk fullt af peningum og smá föt líka og er mjög ánægð með það. Á morgun ætla ég að fara og kaupa mér ný gleraugu fyrir hluta af peningunum og svo verður afgangurinn af afmælispeningnum og útskriftarpeningar notaðir í að endurnýja fataskápinn þegar lillan verður komin úr bumbunni. Ekki slæmt það.
Við þrjú fórum svo út að borða undir kvöldið með mömmu og pabba og Lísu og Kidda og það var mjög gaman. Semsagt fínn dagur og ég er södd og sæl með daginn.
Og takk fyrir allar sætu kveðjurnar! Ekkert smá gaman að fá svona mörg komment og sms og símhringingar :)


8 Comments:
Gott að þú áttir skemmtilegan og góðan afmælisdag.
Bestu kveðjur frá Ester.
Takk, Ester :)
Góðann daginn..
Athuga stöðuna ;)
Innilega ti hamingju með daginn krúsímús :) Yndislegt að þú hafir átt góðan dag, og ekki skemmdi fyrir að snúllan ákvað að koma ekki, veit þú villt hafa þinn dag *blikk-blikk* Hún kemur áður en langt um líður :D
Hlakka til að hitta á ykkur sem fyrst... æj þetta er farið að hljóma eins og gömul tugga.... en það hafa víst allir mikið að gera e-ð :S
En verðum í bandi mín kæra
Kveðja í kotið María, bumbulína og strákarnir ;)
Elsku strumpurinn minn!! Innilega til hamingju með afmælið. Og nú sendi ég þér alla mína hríðarstrauma sem ég á til!!! Koma svo strympa litla!!!!
Kveðja
Gunnur
Takk stelpur! Allir hríðarstraumar vel þegnir, ég er ENNÞÁ ÓLÉTT og er að verða fokking grömpí og pirruð á þessu ástandi ! ROOOOAAAARRRRRRRR (þetta var svona ljónaöskur sko)
hæhæ
ég er illa sein hérna megin...til hamingju með daginn (í fyrradag) :)
Vona að daman fari að láta sjá sig og að allt gangi vel á þessum langa lokaspretti ;)
Takk, Ingibjörg mín :)
Post a Comment
<< Home