Army of me

Tuesday, July 29, 2008

Komnar heim

Takk fyrir kveðjurnar, æðislegt að sjá hvað margir voru að hugsa til okkar!

Ég vaknaði klukkan eitt aðfaranótt mánudags með verki og var ekki einu sinni viss um að þetta væru hríðir, andaði mig í gegnum hvern verk en var einhvern veginn ekki alveg að kaupa það að ég væri loksins að mjatla af stað. Ég var því bara róleg, lagði kapal í tölvunni og spjallaði við vinkonu á msn til klukkan 4 hehe. Þá voru verkirnir orðnir ansi harðir og bara 1-2 mínútur á milli. Þá ákvað ég að vekja Anton sem hentist framúr þegar hann sá hvað ég var farin að fá verkina ört. Við fórum í sturtu og Anton hringdi svo upp á deild og lét vita af okkur.

Við vorum komin upp á deild klukkan korter í 5 þar sem ég var mæld með 6 í útvíkkun og sett í monitor. Ljósan var frekar róleg, sagði að ég væri langt komin í fæðingu en talaði samt um að sprengja belgina kannski síðar. Það er skemmst frá því að segja að þegar fyrsta kollhríðin kom var ég enn í gallabuxum! Anton þurfti að koma mér til bjargar og redda því og svo vippaði ég mér upp í fæðingarrúmið og átti hana á korteri eða svo. Ég þurfti að taka gjörsamlega á öllu sem ég átti þar sem hjartslátturinn féll svo hressilega hjá skottu og kalla þurfti til lækni. Þegar læknirinn hins vegar kom lá skotta litla hágrátandi á bringunni minni, rúmar 16 merkur og 54 cm. Ég fékk engar deyfingar þar sem það gafst hreinlega ekki tími í það. Skal alveg viðurkenna að þetta var vont en samt gaman að hafa prófað þetta gjörsamlega lyfjalaust.

Ljósan sagði einmitt : "Ég vissi alveg þegar þið komuð að þú yrðir búin fyrir hádegi..en að þú yrðir búin að eiga klukkutíma eftir að þú komst datt mér ekki í hug!"

Skotta fæddist í framhöfuðstöðu svo þrýstingurinn var GÍFURLEGUR og ástandið eftir því, ég rifnaði bara lítið samt og var saumuð 3 spor en ég er svakalega eftir mig og á erfitt með gang en þetta kemur. Hún er dugleg að drekka, vill helst vera á brjóstinu eða að kúra í fanginu hans pabba síns 24/7 og skoða heiminn. Við erum afskaplega ánægð með þessa nýju viðbót í fjölskylduna okkar og Ísak er mjög stoltur stóri bróðir

Við lilla "sváfum" á spítalanum í nótt en feðgarnir voru heima og sóttu okkur svo í morgun. Við vorum í herbergi beint fyrir utan Hreiðrið þar sem Hreiðrið var fullt..ömurlegt herbergi því það voru svo mikil læti í lyftunni hinum megin við vegginn og svo var einhver dyrabjalla sem hringdi inn á herbergið til okkar alla nóttina. Sennilega leggja hjúkkurnar sig þarna þegar það eru ekki svona margir. Það var því lítill svefnfriður en við notuðum tímann til að kúra saman og horfa á hvora aðra í staðinn.

En já þetta er orðið allt of langt, ég ætla að henda inn þessari færslu á helstu staði á netinu hehe. Anton tók fullt af myndum (m.a þessa sem hann setti á bloggið) og þær koma vonandi bráðum inn.

Kveðja, Eygló ; stolta og þreytta mamman

12 Comments:

At July 29, 2008 10:53 AM, Anonymous Anonymous said...

Þessi stúlka er algert yndi og fangaði hjarta mitt um leið og ég leit hana augum líkt og með Ísak.

Ég vona að heilsan komi fljótt hjá þér og að þið dafnið vel saman í kotinu.

Elska ykkur öll.
Knús
Lísa

 
At July 29, 2008 11:51 AM, Anonymous Anonymous said...

Duglega kona! Rosalega er ég stolt af þér og ykkur báðum! :-) Velkomnar heim monsurnar mínar, njótið daganna sem framundan eru...hlakka til að kynnast litlu glónni...xx
knús og kremjur
Tinnslan

 
At July 29, 2008 1:44 PM, Anonymous Anonymous said...

Ohhhhhhh
Frábært að lesa söguna, geggjað að þetta gekk svona vel :o)
;o)
innilegar hamingjuóskir, enn og aftur :)
kv Sigrún og börnin

 
At July 29, 2008 3:06 PM, Anonymous Anonymous said...

Vá þetta hefur gengið hratt! Hörkukona Eygló mín :) Ég hef líka sofið í þessu herbergi, nóttina sem ég var gangsett og lyftan var að gera mig brjálaða!! Gott að heyra svona fljótt fréttir :) Til hamingju öll með þetta allt :)

 
At July 29, 2008 4:56 PM, Anonymous Anonymous said...

velkomnar heim vonandi að ykkur heilsist vel og litla prinsessan dafni vel og verði hraust sýnist vera hörku dugleg.Reyndu að hvíla þig og safna kröftum stóra mín risa knús frá öllum í sveitinni

 
At July 30, 2008 3:38 AM, Anonymous Anonymous said...

Dugnaðarkona Eygló mín..:O)
Það er gott að allt gekk vel og að þið eruð komnar heim í kotið ykkar.
Hafið það sem allra best og ég hlakka til að sjá fullt fullt af myndum af famelíunni
risaknús og kram til ykkar allra


Kveðja Lóló

 
At July 30, 2008 3:40 AM, Anonymous Anonymous said...

Gleymdi einu Eygló mín :O) en við Gulla erum búnar að virkja aftur síðuna okkar góðu blog.central.is/kbs8081
og það eru komnar inn nokkrar myndir :O)

Kveðja Lóló

 
At July 30, 2008 3:53 AM, Anonymous Anonymous said...

oo hvað þetta er yndislegt elsku Eygló mín, aftur innilega til hamingju :*;*;*

 
At July 30, 2008 6:07 AM, Anonymous Anonymous said...

Ég er sko þvílíkt stolt frænka þessa dagana! Innilega til hamingju með þessa fallegu stelpu! Kunnulegur svipur á dömunni- greinilega skyld stóra bróður sínum ;)Hlakka til að sjá ykkur öll. Daldis

 
At July 30, 2008 7:03 AM, Blogger Eygló said...

Takk allir fyrir sætu kommentin :) Við erum að rifna úr monti yfir ungu dömunni, öll þrjú ;)

 
At July 30, 2008 11:42 AM, Anonymous Anonymous said...

Innilega til hamingju aftur kæra fjölskylda!!

Hún er dásamlega falleg :)

 
At July 30, 2008 2:51 PM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með perluna ykkar, ekkert smá flott.

kveðja
Edda Sigurdís

 

Post a Comment

<< Home