"Mér líður eins og einhver hafi verið búinn að skeina sig á brauðinu sem ég var að enda við að borða og ég hafi ekki vitað það".
Þetta sagði hann Anton minn í kvöld og hann alveg nelgdi tilfinninguna sem ég hef í nokkra daga reynt árangurslaust að færa í orð. Þannig er þetta nefnilega..fólkið í landinu fór að ráðum þeirra sem virtust allt vita og hélt í góðri trú að allt yrði í lagi. Þegar svo allt um þrýtur erum við öll orðin að aumingjum og afætum og hötuð af öðrum þjóðum. Ömurleg tilfinning.
Þjóðin er ekki bara áhyggjufull, döpur og örvæntingarfull..hún er líka reið.
Í fyrsta sinn skammast ég mín fyrir að vera Íslendingur og næst þegar ég fer til útlanda finnst mér ekki ólíklegt að ég ljúgi til um þjóðerni mitt til að fá að vera metin að verðleikum. Mér finnst ég hálf niðurlægð..og við öll.
Þrátt fyrir þetta fúla og deprimeraða blogg er ég ekki að gefast upp, það er einfaldlega ekki í boði. Við komumst í gegnum þetta og segjum barnabörnunum okkar frá neysluþjóðinni sem skeit upp á bak;)
Hafið það gott og knúsið hvort annað.


5 Comments:
Vel að orði komist!
kreppukveðja frá Sverige
(ég hlæ nú bara að svíunum þegar þeir tala um sína kreppu...)
Þetta er allt svo rétt sem þú segir en við verðum bara að spýta í lófana og halda áfram. Annað er bara ekki í boði eins og þú segir líka. Hugsum bara vel um það og þá sem eru næstir okkur og höldum áfram. Kv.Heiða Björg
Takk stelpur..mikið var gott að koma þessu frá sér ;)Já Hrafnhildur, ég vorkenni svíunum sko ekkert haha! ;) Heiða Björg: satt..það þýðir ekkert annað en að bíta á jaxlinn og halda áfram
Ég var reyndar búin að heyra þessa setningu áður og skemmti mér vel yfir henni um leið og ég fann fyrir smá depurð. Þið hjónin hefðuð ekki getað orðað þetta betur.
En það er huggun harmi gegn að við eigum öll hvort annað að, og það var yndislegt að líta smávegis upp úr bókunum og eiga góða stund með stelpunum í fjölskyldunni í gær, enda held ég að við höfum alveg náð að gleyma smá kreppu og gjaldþrotum.
Knús og kossar
Lísa
p.s. ef Agnes vaknar ekki næst þá vek ég hana!!! Sem virkaði reyndar ekki í gær þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, þar sem ég er greinilega ekki komin með "vagnapróf".
Hehehe Lísa, henni finnst greinilega bara svona gott að lúlla í nálægð þinni ;) ...meira að segja þó þú keyrir vagninum á allt sem í vegi verður..híhíhí :)
Post a Comment
<< Home