Mikið að gera
Vá hvað það gefst lítill tími núna til að gera allt sem maður var vanur að gera áður!
Allavega situr auðvitað bloggið og slíkt á hakanum þar sem þörfin á að forgangsraða er brýnni en nokkru sinni fyrr. Litla sponsið er svolítið óvært og því fer mikill tími í að ganga um gólf eða brjóstfæða krílið. Þetta gerum við samt auðvitað með glöðu geði. Svo þarf sá stóri auðvitað líka að fá athygli og umhyggju svo það er ekki mikill tími eftir í hangs. Reyndar sofa þau bæði allar nætur en þá vil ég líka sofa ;)
Ég verð nú samt að segja ykkur að ég á yndislegan mann. Hann nýtur þess í botn að vera í fæðingarorlofi og sinnir börnunum sínum svo vel. Hann skrapp um daginn með drenginn í veiðitúr og í bíó og svona, þeir gera ýmislegt saman. Hann vílar ekki fyrir sér að ganga um gólf með grátandi dóttur okkar eða skipta á kúkableyjunum hennar og svo er hann alltaf að baka og elda eitthvað sjúklega gott! Í gær bakaði hann til dæmis skinkuhorn og pizzasnúða og í dag bakaði hann kanelsnúða svo Ísak fékk nýbakaða snúða og mjólk þegar við mæðginin komum heim eftir að ég náði í hann í leikskólann.
Já það er margt skemmtilegt þessa dagana þó ég fari varla út fyrir hússins dyr. Anton hálfpartinn rak mig út að sækja drenginn til að ég fengi smá ferskt loft og ég fattaði það eiginlega þá hvað það er langt síðan ég hef farið út. Ég er orðin svolítið eins og moldvarpa bara.. furðaði mig á því hvað runnarnir meðfram götunni okkar væru orðnir stórir og hvað allt væri eitthvað breytt. Og sumarið er næstum á enda!
En það er allt í lagi, ég er búin að vera að sinna mikilvægum hlutum svo það skiptir ekki miklu máli þó eitt sumar hafi þotið hjá.


6 Comments:
Þú átt alveg yndislegan og frábæran mann Eygló mín, ég vissi það fyrir löngu að þið ættuð að vera saman (í þá gömlu góða daga :O) )
Það er ekki leiðinlegt að fá eitthvað nýbakað og ferskt á hverjum degi :O)
Hafið það gott snúllurnar mínar
Knús og kram
Lóló
HÆ hæ :o)
æji vona að þessi óværð líði fljótt hjá...
Gaman að heyra hvað þið njótið lífsins vel saman :)
knús í bæinn
kv Sigrún Heiða
Yndislegt að heyra frá ykkur og gott að ykkur líður vel! Já hann Anton er algjör gullmoli og þeir eru sko ekki síðri molarnir sem hann er að snúast í kringum þessa dagana ;-)
Hlakka til að sjá ykkur aftur og skal með glöðu geði ganga um gólf með kríli í fanginu í klukkutíma eða svo...xx
knús þangað til næst
t
hæ snúllur. Vonandi líður þessi óværð hjá litluni. ó já þú ert sko vel gift mín kæra (:
knúsaðu liðið þitt...luv...gullan
þessir runnar í götunni ykkar eru líka ekki normal, búin að labba þarna nokkrum sinnum og maður varla hefur það meðfram :) allavega eins gott að vera bara með einfaldan vagn :)
kv. Sigurlaug Björk
Já nákvæmlega, Sigurlaug! Gangstéttin bara hverfur undir þetta trjádrasl ! :o
Og takk stelpur- já ég er vel gift :)
Post a Comment
<< Home