Prívatpartar?
Það er svolítið skondið hvað allir prívatpartar verða að almenningseign á meðgöngu og eftir fæðingu.
Á meðgöngunni klappar fólk gjarnan á vömbina á ófrískum konum, aðdráttaraflið er slíkt að jafnvel ókunnugt fólk finnur sig knúið til að snerta og strjúka. Sem betur fer er ég ekki ein af þeim sem átti erfitt með að höndla svoleiðis.
Eftir fæðingu verður þetta hálfu verra. Það byrjar auðvitað með því að ljósmóðir starir upp í guðslukkuna á konugreyjunum, og oft koma læknar eða aðstoðarfólk þarna við sögu líka. Svo er öllu tjaslað saman með nál og "tvinna" að athöfn lokinni en þar með er ekki öllu lokið. Næstu daga taka við ýmsar skondnar spurningar er varða klósettferðir og annað sem maður myndi seint flokka sem almennt umræðuefni í daglegum samskiptum.
Svo eru það brjóstin. Ég var svo heppin að fá sýkingu í annað brjóstið og þurfti að leita aðstoðar. Mér fannst það pínulítið fyndið að sitja á stól á meðan brjóstið á mér var skoðað með stækkunargleri (hversu lítil þurfa þau annars að vera til að skoðunin þarfnist stækkunarglers?) og get ekki beint sagt að þetta hafi verið Kodak-moment.
Það fyndnasta við þetta allt er samt það að einhvern veginn verður manni alveg sama að lokum. Á einhverjum tímapunkti hættir maður að hafa áhyggjur af því að þurfa að vippa út túttunum á kaffihúsi til að seðja hungur litla undursins (já smá væmið kannski. En who cares..).


5 Comments:
Mikið kannast ég við þetta :) Mjög sönn færlsa hjá þér! :) Ég var einmitt á kaffihúsi með mömmu um daginn og svo bara brjóstinu vippað út og barnið á, mamma spyr svo ,,villtu eitthvað yfir þig" svona til að hylja bobbingana og ég bara ,,neinei maður er orðinn svo vanur þessu að hafa annað brjóstið út hér og þar um allan bæ" :) Fannst þetta að vísu smá erfitt fyrst en núna er þetta svo eðlilegt og ekkert mál :)
Haha já ég fór með títlu litlu til læknis í gær og þurfti að gefa henni á biðstofunni. Var svona pínu feimin þar sem það voru svolítið margir kallar að bíða en maður lætur sig hafa það..þetta verður alltaf auðveldara og auðveldara ;)
Hehehe þetta er svo satt. Svolítið kómískt að sitja í stofunni og ræða um klósettferðir við ljósmóðurina sem maður hitti í fyrsta sinn fyrir örfáum dögum síðan. Svo er alveg sama hver er í heimsókn t.d. alltaf situr maður með túttuna úti til að fæða litla manninn ;)
Kveðja, Oddný
:)
kannast við þetta ;)
oohh já láttu mig þekkja það - maður "opnast" heilmikið við að eignast barn. Umræður um skítableijur og fleira álíka við kvöldverðarborðið hreyfa ekki við manni lengur ... :P
-kv.Ásta
Post a Comment
<< Home