Army of me

Monday, November 17, 2008

LÚÐI!!

Ég var farin að halda að nördagenið í mér hefði dáið drottni sínum og satt best að segja var ég hálfpartinn farin að sakna þess, því það gefur lífinu lit að nördast svolítið af og til. Það er alltaf gott að geta hlegið svolítið að óförum sínum og skemmt öðrum í leiðinni.

Þannig er málið að ég er alveg svakalega náttblind, ég er bara eins og blindur kettlingur um leið og það fer að rökkva úti. Ég skellti mér með bæði börnin í sveitina til mömmu og pabba þar sem kallinn var að fara erlendis á vegum vinnunnar og eldsnemma einn morguninn skríður Ísak fram úr og fer á klósettið sem er svosem ekkert í frásögur færandi. Nokkru síðar ákveð ég að gera slíkt hið sama og staulast fram í myrkrinu.

Skyndilega heyrir mamma háan skell. Þá hafði dóttir hennar gengið af öllu afli á lokaða baðherbergishurðina! Ég hafði þá semsagt bara gert ráð fyrir því að sonur minn hefði skilið dyrnar eftir opnar eins og vanalega og gekk bara ótrauð á hurðina. Þvílíkur snillingur sem ég er.

Ég get allavega sagt ykkur það að ég ber marblettina mína með stolti og er enn hlæjandi..þetta var líklega svona “had to be there moment” en jeminn, ég bara get ekki hætt að flissa!

10 Comments:

At November 17, 2008 7:13 AM, Anonymous Anonymous said...

Ha ha ha...ég get alveg séð þetta fyrir mér Eygló mín....

Knús og kram á ykkur
Kveðja frá Selfossi
Lóló og Sindri Þór

 
At November 17, 2008 11:24 AM, Blogger Hrafnhildur said...

þú ert svo fyndin!!
eins gott að eiginmaðurinn var erlendis annars væri skuldinni eflaust skellt á hann... "æ ég gekk á hurð" hver trúir því??

knús og kveðja
Hrafnhildur

 
At November 17, 2008 12:34 PM, Blogger Eygló said...

Hahaha já Hrafnhildur, það er sko eins gott ;)

 
At November 17, 2008 5:28 PM, Anonymous Anonymous said...

Hahaha, Eygló þú ert svo mikið æði. Hver annar en þú getur sagt með sanni "ég gekk á hurð" ;)
-Oddný

 
At November 17, 2008 11:44 PM, Anonymous Anonymous said...

mwahahahaha ég sé þetta alveg fyrir mér...vildi að ég hefði verið þarna.

sakna ykkar
knús
Lísa

 
At November 18, 2008 3:13 AM, Anonymous Anonymous said...

Enginn annar en þú gæti gengið á hurð sannleikanum samkvæmt hihi. Hafið það gott í sveitinni sjáumst svo um helgina, kveðja Heiða Björg

 
At November 18, 2008 4:22 AM, Blogger Eygló said...

Híhí já I know, mér gengur ágætlega að láta lúðalega! ;) Lísa- ef þú hefðir verið viðstödd hefðirðu líklega dáið úr hlátri hehehe

 
At November 19, 2008 8:46 AM, Anonymous Anonymous said...

Hahahaha! Þú ert einstök! :)

 
At November 20, 2008 3:16 AM, Anonymous Anonymous said...

sama dag og ég las þetta flissaði ég alla leiðina niður í lyftunni þegar ég var að sjá þetta fyrir mér...gott að þú meiddir þig samt ekki meira.
Knús
Lísa

 
At November 23, 2008 4:25 AM, Anonymous Anonymous said...

hæ iris 32 a vona du munir eftir mer.gamla kelling hlaupa.skoðaðu heimasiðu mina blog.central.is/girlpuzzle
ertu gleyma mer .ef ekki heyrt ii þer langan tima sakna þin..skrifaðu a heimasiðu mina. ertu enþá inna msn? kv iris .

 

Post a Comment

<< Home