Army of me

Sunday, November 02, 2008

Þakklætisblogg

Góðan dag

Héðan er allt gott að frétta, feðgarnir hafa reyndar legið í magapest en við mæðgur höfum verið sprækar og stundað útstáelsi og skemmtilegheit. Svosem ekki margt sem hefur á daga okkar drifið, lífið er bara ljúft þó ég sé stundum alveg aðfram komin af þreytu þar sem unga snótin á svolítið erfitt með að sofa á nóttunni. Þetta er samt allt að koma og mér finnst hún orðin mun rólegri á nóttunni heldur en hún var. 7,9,13, banka á við hehe.

Þessa dagana er ég eitthvað svo endalaust þakklát fyrir fjölskylduna mína og vini mína, það eru svo margir búnir að reynast okkur vel, allir að hringja og tékka á manni, senda falleg skilaboð og svo kom Tinna vinkona færandi hendi um daginn með súpu og brauð. Það var kærkomið þar sem ég hékk heima, óendanlega þreytt og uppgefin með veikan snúð og litla vargatítlu. Svo er hann Anton minn auðvitað alveg frábær líka, eldar matinn á hverju kvöldi og er duglegur að sinna stóra stráknum okkar meðan ég sinni þeirri stuttu.

Systir mín er voða upptekin í skólanum og ég sakna hennar fullt en skil hana svoo vel, er sko ekki búin að gleyma verkefnatörnum í mínum skóla. Þrátt fyrir að hún sé upptekin gefur hún sér tíma til að spjalla við mig í síma og um daginn fékk ég að koma til hennar og sofnaði á sófanum hennar. Hún var svo sæt að breiða yfir mig kósý peysu og knúsaði svo litlu títluna mína heillengi á meðan ég slakaði á.

Svo eru það börnin mín. Ísak Aron er svo hjálpsamur, það er æðislegt að fara með hann með sér í búðir svona yfirleitt. Hann hjálpar til við að muna hvað þarf að kaupa og aðstoðar við að tína hlutina ofan í körfuna. Svo er svo gaman að spjalla við hann, það er svo skemmtilegt að heyra hvernig svona fimm ára pjakkar sjá heiminn, það er allt svo klippt og skorið. Svo auðvitað talar hann út í eitt. Stundum líður manni hreinlega eins og eyrun séu að detta af manni en þegar hann talar ekki mikið, saknar maður þess ;)

Agnes Harpa er líka að taka stór þroskastökk þessa dagana. Hún er farin að setjast upp í ömmustólnum, farin að halda höfði og er alveg rosa sterk þegar hún liggur á maganum. Þegar hún liggur á bakinu ýtir hún sér með fótunum í allar áttir og reynir að velta sér alveg villt og galið. Hun vill ekki lengur liggja í fanginu á fólki eins og eitthvað ungabarn og brosir og brosir og hjalar og hlær.

Í mikilli þreytu um daginn sagðist ég helst vilja fara á eyðieyju í svona tvær vikur til að sofa og þurfa ekki að hugsa neitt en ég er búin að jafna mig, Heiða frænka ;) Hún frænka mín sagði að mér myndi hundleiðast og ég myndi sakna barnanna minna og mannsins og vina og ættingja. Auðvitað er það alveg rétt, ég fer ekki fet, hér er allt sem ég þarf :)

Já langt raus en svona er þetta :) takk öll fyrir að vera til, love you all! *knús*

Eygló peygló kveður með stæl

7 Comments:

At November 02, 2008 4:32 PM, Anonymous Anonymous said...

Lovjútúalot!! ;-)
t

 
At November 03, 2008 2:58 AM, Anonymous Anonymous said...

Já fjöldkyldan er það verðmætasta sem við eigum. Gott að þú ert búin að jafna þig á eyðieyjutalinu hihi. Svo segi ég bara takk fyri síðast það var voða gaman að fá ykkur í heimsókn um helgina, fá að knúsa Agnesi aðeins og fara í Legó með Ísak alltaf gaman. Knús Heiða Björg

 
At November 03, 2008 5:42 AM, Anonymous Anonymous said...

Takk fyrir ykkur öll, samverustundir með ykkur eru alltaf kærkomnar, svo er nú Agnes alveg búin að bræða hann Kidda..hann er enn að tala um það.

Love you öll í heila klessu.
Knús
Lísa og fan no 1 að Agnesi; Kiddi

 
At November 03, 2008 5:52 AM, Anonymous Anonymous said...

Takk fyrir að vera til, love you rosamikið og fyrirgefðu að ég skuli búa hér í langtiburtistan, það er alveg heilt h.....
mamma.

 
At November 03, 2008 9:10 AM, Blogger Eygló said...

Æ takk fyrir öll sætu kommentin :*

Mamma, það er ekkert að fyrirgefa! Ef þið mynduð ekki búa í langtburtistan hefðum við enga sveit til að hverfa til. Það er svo notalegt að koma i sveitasæluna af og til og slappa af og taka langa göngutúra og svona :) nú styttist í næstu heimsókn og þá tekur hekluskólinn við, ekki satt? :)

 
At November 04, 2008 6:07 AM, Anonymous Anonymous said...

Þið eruð svo dugleg :O)

Og það er sko rétt að fjölskyldan er það langdýrmætasta sem við eigum...

knús á ykkur :O)

Lóló og Co á selfossi

 
At November 05, 2008 3:42 AM, Anonymous Anonymous said...

*knús*
Þú ert svo rík Eygló mín!
Kv Sigrún HP

 

Post a Comment

<< Home