jól og prumpubrandarar
Héðan er lítið að frétta. Á sama tíma í fyrra var ég í prófum og bölvaði því hressilega að geta ekki verið heima með kútnum að undirbúa jólin. Nú er ég heima og sakna skólans pínkupons þó ég sé samt rosalega fegin að vera búin með þennan kafla, enda var hann erfiður á margan hátt.
Ég er búin að vera rosa rosa löt. Tók mig loksins til í gær og þreif svolítið og tók til og svo er smá jólaskraut komið upp hér og þar, aðallega fyrir litla kútinn sem finnst þetta allt alveg æðislegt auðvitað. Ég elska það að upplifa jólin í gegnum hann, það er allt sem glitrar svo fallegt og allt sem heitir jóla-eitthvað er svo spennandi.
Við hjónin útbjuggum pakkadagatal handa honum og það má varla á milli sjá hvert okkar er spenntast á morgnana, við bíðum alltaf eftir því að hann opni og hlökkum til að sjá viðbrögðin. Í einum pakkanum leynist svona prumpulyklakippa - semsagt með allskonar tegundum prumpuhljóða og ég bara geeet ekki beðið eftir því að hann opni þann pakka, því honum finnst ekkert í heiminum fyndnara en prump. Systir hans er búin að læra að frussa svo munnvatnið spýtist í allar áttir og stóri drengurinn veltist um af hlátri í hvert skipti sem hún frussar því hljóðin minna hann svo á prump. Dásamlegt að vera fimm ára!
Nú hef ég allan tíma í heimi til að undirbúa jólin..eða svo gott sem, þegar börnin gefa mér tíma til þess. Ég ætla að gefa Ísak lengra jólafrí en í fyrra og njóta þess að dunda með honum og hafa það gott. Mikið hlakka ég til. Ég ætla ekki að láta kreppuna varpa skugga á jólin- við gefum minni pakka þetta árið og naumhyggjan er allsráðandi en ég vona að allir hafi skilning á því..og hef fulla trú á því að svo verði. Ég á ekki heimtufreka fjölskyldu svo þetta verður ekkert mál :)
Hafið það gott öllsömul, stórt knús á línuna :*


4 Comments:
Hæ dúllan mín gaman að þið hafið það gott. trúi því vel að það sé gaman að upplifa jólin með stóra strák. man eftir mömmunni á þeim aldri það var ekki leiðinlegt að spjalla og hlusta í þá gömlu góðu dagavona að þið hafið það ætíð sem best risa knús til ykkar allra gamla í sveitinni
Takk Erla mín :) já held að drengurinn sé svolítið líkur mér að mörgu leiti, algjör bullukall :)
(sumir eru ekki lengur fimm ára en finnst prump samt alveg ógeðslega fyndið hahhaa nefnum engin nöfn..)
takk fyrir leikhúsferðina í gær sætan mín! hlakka til að taka jólakaffihúsarölt á næstu dögum....jólaknús í þitt jólahús! T
haha já Tinna..það eru margir þannig..including me ;) svo við Ísak getum hlegið dátt saman þegar hann fær prumpudæmið :)
Ohh já takk fyrir leikhúsferðina, þetta var ÆÐI ÆÐI, langt síðan ég hef hlegið svona mikið :)og kaffihúsarölt..umm dahhhh :) til er ég!
Post a Comment
<< Home