Army of me

Thursday, January 08, 2009

kvart og kvein

Títlan er búin að vera lasin í nokkra daga með lungnabólgu og eyrnabólgu. Hún er komin á pensilín og sterapúst svo ég vona innilega að henni fari að líða betur, litla skottinu. Mikið dáist ég að foreldrum langveikra barna. Ég hef varla farið út í marga daga og ég er gjörsamlega að tapa því litla sem eftir var af vitinu! 

Mig langar í ræktina að púla og fá útrás..en þá þarf maður víst að eiga fullt af peningum, þetta er orðið fáránlega dýrt..eins og svosem allt annað. 

Sólarhringurinn kominn í klessu í veikindunum..sweet. 

Samhengislaust bull í dag ? Já. Í dag er ég fúl og neikvæð, á morgun ætla ég að vera glöð og skemmtileg!

4 Comments:

At January 08, 2009 4:11 PM, Anonymous Anonymous said...

Hæ mús
Leiðindarveikindi eru þetta. Vonandi hressist hún nú fljótt litla monsurófan og þá getiði farið út að spóka ykkur! Heyrumst á morgun og hittumst innan þriggja daga, sem sagt fös, lau eða sun...!? ;-)
knús,ást,bros og prump
T

 
At January 09, 2009 8:23 AM, Blogger Eygló said...

haha flott þetta prump í lokin, Tinnslan mín! ;)

 
At January 10, 2009 2:51 AM, Anonymous Anonymous said...

Hahaha ég verð að segja sama mér fannst þetta prump best hjá henni Tinnu svona í lokin.

Vonandi eru nú farið að heilsast betur hjá á þínum bæ, hlakka alveg ógurlega mikið til að fá knús frá litlum örmum og þínum stóru líka.

Knús í kless og ekkert prump frá mér...

Lísa

 
At January 14, 2009 10:46 AM, Anonymous Anonymous said...

Takk fyrir daginn í dag, var svooooo mikið gaman að hitta ykkur og fá að vera með ykkur.

Stór knús
Lísa

 

Post a Comment

<< Home