Army of me

Saturday, January 31, 2009

barnahjal

Ég hef ekkert nennt að blogga í langan tíma. Mér hefur ekki fundist ég hafa neitt spennandi að segja, ég er "bara" heima að sinna heimili og börnum. Það er samt alveg nóg að gera og oft eitthvað skemmtilegt um að vera.

 Í kvöld fann ég til dæmis fyrstu tönnina hjá Agnesi! Fannst svo skrítið hvað það var orðið óþægilegt þegar hún bítur. Hún bítur nefnilega stundum þegar hún er að drekka og fram til þessa hefur það ekki verið sárt. Anton stökk á fætur og kom með skeið og við heyrðum þetta fína kling-hljóð. Ótrúlega skemmtilegt, ég fékk meira að segja smá gæsahúð af gleði. Maður verður svo væminn og mjúkur þegar maður eignast börn ;)

Ísak Aron er svolítið tættur þessa dagana og við erum að reyna að veita honum extra athygli, þetta er örugglega einhver skellur sem hann er að fá núna, elsku kúturinn. Hann er náttúrulega búinn að vera einbirni í 5 ár og ekkert auðvelt að þurfa allt í einu að deila athyglinni með öðru barni. Hann er samt alveg svakalega góður við systur sína, þannig að ef þetta er afbrýðisemi bitnar hún allavega ekki á þeirri stuttu, sem betur fer. 

Í gær sótti ég Ísak í leikskólann og Agnes Harpa svaf dúðuð í vagninum. Við fengum okkur langan göngutúr í snjónum og sólinni og enduðum í ísbúð þar sem hann fékk trúðaís með súkkulaðihatti- hann elskar svoleiðis ís. Í dag fórum við svo bara tvö saman í bíó og það var ótrúlega gaman þó ég hefði ekkert sérstaklega gaman af þessari mynd ;) á morgun er hann svo búinn að tala um að fara í sund og ég ætla að skella mér með honum þó ég sé voða lítið fyrir sund. Á meðan fær Anton gæðastundir með Agnesi Hörpu svo þetta er win-win situation! ;) 

Eins og sjá má á þessu bloggi eiga börnin hug minn allan þessa dagana og ég hugsa um fátt annað, önnur áhugamál og skemmtanalífið sitja svolítið á hakanum. 

Ég vona að þið séuð samt ekkert hætt að kíkja á þessa síðu þó ég sé ekki dugleg að blogga núna, ég blogga þegar andinn kemur yfir mig og þegar ég fæ tækifæri til að setjast og pikka í þögninni..sem gerist yfirleitt á nóttunni eins og núna! 

Knús á línuna
Eygló

5 Comments:

At February 01, 2009 8:59 AM, Anonymous Anonymous said...

Gaman að lesa um ykkur eins og venjulega, þetta með að börnin eigi hug manns allan, ég hef í mörg ár skrifað jólabréf til danskra vina okkar eins og þú veist, og ef maður les bréfin öll frá upphafi fjalla þau nær eingöngu um börnin mín, ein eða tvær línur um okkur og helst ef við höfum farið til útlanda, en svona er bara lífið við lifum fyrir börnin okkar og það er bara alveg eins og það á að vera. Ástarkveðja, mamma

 
At February 02, 2009 1:43 AM, Anonymous Anonymous said...

Mér finnst gaman að lesa um börnin þín enda eru þau allveg einstök. Skil þig líka svo vel, þarf stundum að bíta mig í tunguna til að tala ekki of mikið um unglinginn minn því auðvitað finnst mér hún alltaf æði þó hún geri mig gráhærða þess á milli hihi. En njóttu allra litlu augnablikana með börnunum þínum þau koma ekki aftur en reyndar bara ný og líja skemmtileg.
Bestu kveðjur, Heiða Björg

 
At February 03, 2009 4:34 PM, Anonymous Anonymous said...

ég kíki alltaf...því ég veit að það kemur blogg á endanum, aumingja þeir sem bíða eftir bloggi frá mér. Fötin þeirra eru örugglega farin úr tísku síðan þeir byrjuðu að bíða lol.
Það er enginn skömm að skrifa um það sem gerist í kringum mann og núna eru það börnin hjá þér, sem kannski útskýrir bloggleysið mitt.
og ef þú bloggar ekki þá hringi ég bara til að fá að heyra smávegis sírenuvæl í símann (bara ég og þú skiljum þennann) úps ég fór að hlæja upphátt.

KNús og koss
Lísa

 
At February 04, 2009 4:08 AM, Anonymous Anonymous said...

hæ dúllan mín (: Gaman að lesa bloggið hjá þér (:
ég kannst við þessa "afbrýðisemi" Var eins hjá mínum börnum. Ingu Sól fannst allt í lagi að eiga lítinn bróður en þegar litli bróðir fór að geta gert hitt og þetta og allir "nei váá sjáðu þetta" þá fór allt í mínus hjá henni. Þetta líður hjá enda líka ekki annað hægt með svona súper foreldra eins og þið eruð (: allir fá nóga athygli (:

Knús á línuna.....Gullan

 
At February 04, 2009 4:45 AM, Blogger Eygló said...

Takk stelpur mínar :) ég ætla að reyna að vera duglegri að blogga..þó það verði bara um börnin mín hehe.

Gulla: gott að heyra að þið komust yfir þetta tímabil, ég vona að þetta vari stutt!

 

Post a Comment

<< Home