hér er ég!
En nú bæti ég úr þessu fyrir
Heiðu frænku og fleiri sem hafa innt
mig eftir bloggi undanfarið:)
Héðan er allt gott að frétta, Ísak Aron er kominn með rauða beltið í karate og er ekkert lítið stoltur af því. Hann vildi helst sofa með það fyrst held ég ;)
Agnes Harpa er alltaf að stækka líka, fer upp á 4 fætur og reynir að skríða en skilur ekki alveg hvernig þetta virkar alltsaman. Mér finnst samt allt í lagi að hún fatti það ekki
alveg strax! :)
Anton er á fullu í mastersritgerðinni þessa dagana. Svo var hann að klára að kenna í HÍ og er að vinna voða mikið á Hagstofunni líka. Maðu má þakka fyr
ir að hann hafi svona mikið að gera á þessum síðustu og verstu- ekki allir svona heppnir þó ég væli stundum yfir því að sjá hann lítið þessa dagana.
Ég er loksins byrjuð að hreyfa mig aftur eftir
meðgönguna og það er æðislegt. Er að mæta 6 sinnum í viku til að byrja með og fer 6:30 á
morgnana á meðan restin af fjölskyldunni sefur á sínu græna. Ég er líka í sjúkraþjálfun þar sem grindin mín fór frekar illa á meðgöngunni og finn að ég er strax orðin skárri eftir nokkra tíma, enda með góðan sjúkraþjálfara sem fylgir öllu vel eftir.
Já það er semsagt ekkert krassandi í fréttum, sem útskýrir ef til vill bloggletina
að einhverju leyti. Við höfum það gott hérna í Álftamýrinni :) Ég skelli inn tveimur myndum með færslunni. Á þeim má sjá fallegu börnin okkar sem við erum svo stolt af!
Knús og góðar kveðjur
Eygló


9 Comments:
Takk Eygló :) var farin að sakna bloggsins þíns, hlakka svo bara til að sjá ykkur um páskana kv.Heiða Björg
Börnin þín eru dásamleg :) Ég kem í heimsókn til þín eftir páska! Verum í bandi :)
Mikið eru börnin ykkar yndisleg :) Gaman að lesa blogg frá þér :)
kv. Hjördís Þorsteins.
Gaman að heyra frá ykkur og sjá sýnishorn af þessum yndislegu krúttulingum sem þú átt! ;-) Ertu virkilega að mæta 6 sinnum í viku kl.6.30 í ræktina, TIL AÐ BYRJA MEÐ??!! hahaha ég myndir nú frekar segja að þú værir atvinnumaður í ræktinni! En gott hjá þér, það verður víst að rækta líkama og sál...
sakna þín...T
ps. ætluðum við ekki að plana hitting..?
Vá takk fyrir kommentin, ég bjóst ekki við að neinn væri að fylgjast með þessu bloggi eftir alla bloggletina :)
Tinna: Já til að byrja með..svo kemst ég í rútínu og í gírinn og þá kannski fer ég að fara 4 sinnum í viku skilurðu hehe. Ég ætla ekkert að fara að mæta 10 sinnum í viku eða neitt svoleiðis ! Jú hittingur..say when :)
Verð að taka undir með Tinnu..."til að byrjað með" hljómaði ankannalega í mínum eyrum..hvað er þá markið ? 8 sinnum og samt bara 7 dagar í vikunni...þarna fór hetjuskapur minn út í veður og vind..fannst ég ossa dugleg að mæta 4 sinnum og allt fyrir ofan það er bónus LOL.
Þú ert mega dugleg og börnin ykkar eru æðisleg..hlakka til að dinglast með ykkur.
Knús
Lísa
æææææðisleg börn sem þú átt. soooo falleg (: veistu það er líka allt í lagi að lesa blogg þar sem er "ekkert" að frétta (: mér fannst þetta nú bara ansi fróðlegt blogg (: hehe knús a ykkur... kv frá Selfossinum...Gullan
HÆ hæ
Ofsalega ertu dugleg!!
í ræktinni og allt, úffff
ég öfunda þig :)
börnin þin eru bara æði og fyndið hvað börn annara stækka hraðar en manns eigin, mer finnst prinsessan þín hún Agnes vera nýfædd bara, hehe
svona er þetta ;)
bestu kveðjur
Sigrun Heiða
Vá hvað þau eru búin að stækka þessi fallegu systkin :O)
Þið eruð svo dugleg famelía, alltaf nóg að gera
Hafið það gott
kveðja frá Selfossinum fagra
Lóló
Post a Comment
<< Home