Í fullum blóma..
Síðastliðinn fimmtudag, fyrir næstum sléttri viku, fengum við athyglisvert verkefni í listmeðferðinni á dagdeildinni. Við fengum leirklump í hendurnar og okkur var ætlað að leira eitthvað sem gæti verið tákn fyrir okkur. Í fyrstu kom þögn og undrun fyllti svip flestra í listmeðferðarherberginu áður en við byrjuðum, ein af annarri að leira, ansi þöglar og hugsi.
Mér fannst þetta kjánalegt verkefni í fyrstu og ég var alveg hörð á því að ég gæti ekki mögulega leirað nokkuð sem gæti verið tákn fyrir mig. Eygló, sem sífellt er að bogna og brotna.
Ég veit að ég var ekki ein um þessa hugsun því við byrjuðum flestar að flissa vandræðalega eða fussa og sveia og hrista höfuðið yfir þessu óskiljanlega verkefni sem okkur hafði verið falið. Þegar upp var staðið höfðum við þó allar leirað einhvern hlut og merkingarnar voru hver annarri dýpri og flottari ! Þetta gátum við þrátt fyrir að hafa ansi takmarkaða trú á eigin getu!
Ég leiraði gamalt tré með kræklóttum og ójöfnum greinum en gildum, stöðugum stofni. Ég viðurkenni það fúslega að ég fékk nettan kjánahroll þegar kom að því að ég þyrfti að útskýra fyrir hinum merkinguna á bak við þetta undarlega skapaða tré (sem fór, vel að merkja, aftur í leirklumpinn að tímanum loknum, þarf líklega ekki að útskýra nánar hvers vegna!!).
Ég held ég geti nefnilega stundum líkt mér við gamalt tré. Ég hef beyglast og svignað og ég hef brotnað og ég hef fellt blöðin og fölnað. En ég lifna alltaf aftur við - ég styrkist, laufgast og vakna til lífsins með reglulegu millibili. Ég á mér fastar og öruggar rætur sem er tákn fyrir fjölskylduna mína og allt fólkið mitt og í mér búa allskonar dýr því það er oft heilmikið líf í mér líka.
Þar hafið þið það, gott fólk. Ég er gamalt tré. Að mér látinni verður líklega nóg að skera mig í tvennt og telja árhringina til að finna út lífaldurinn.. ;)
Hafið það gott og takk fyrir að lesa bullið í mér- mér þykir ótrúlega vænt um það. Komment eru líka alltaf vel þegin.
Knúsur
Eygló sem er að laufgast !


8 Comments:
Vel skrifað hjá þér Eygló mín. Það kemur að því fyrr en varir að tréð þitt verður þakið laufskrúð og farið að blómstra eins og eplatré að vori.
kveðja
Edda
Takk Edda, fallega sagt :)
Mannstu eftir Kirsuberjatrjánum í garðinum okkar ?
Þau voru lítil og veikburða þegar við fengum þau. Og eitt vorið kom kuldi þegar þau voru að springa út, og pabbi þinnúðaði vatni yfir þau heila nótt, og ég hélt þau dræpust við það. EN þau voru eins og þú hristu af sér kuldann og héldu áfram að stækka og vera öllum augnayndi ár eftir ár, alveg eins og þú !
Takk fyrir síðast, það var gaman að kíkja aðeins inn í stóra hvíta kvennahúsið í dag, þar ríkti góður andi.Stórt knús frá mömmu.
Takk mamma, falleg saga! :) Já mig rámar eitthvað í kirsuberjatrén.
Takk sömuleiðis fyrir daginn, gaman að þú skyldir koma og skoða hvar ég er á daginn :) Sammála þér- það er voðalega góður andi þarna.
Þú ert sko algjör meistarapenni mín kæra! Það er svo gaman að lesa pistlana þína...og gott að heyra hvað þér gengur vel! :)
Sendi þér góðar kveðjur og strauma :) Góða helgi!
Klessuknúsar, Jóhanna.
Takk, elsku Jóhanna :*
Alveg frábær samlíking elsku Eygló
bestu kveðjur,Heiða Björg
Elsku Eygló mín - þú ert svooo dugleg, ég dáist að þér! Held að það sé hverjum manni hollt að skella sér í smá sjálfskoðun og pæla aðeins lengra en nef manns nær :) Haltu áfram á sömu braut og misstu ekki trúna á sjálfri þér :)
Bestu kveðjur frá Selló,
Tinna
Post a Comment
<< Home