Army of me

Monday, January 04, 2010

Nýtt ár og lítið um áramótaheit

Í ösinni undanfarna daga hef ég verið svolítið að spá í almenna kurteisi. Ekki það að ég hafi orðið eitthvað illa úti hvað það varðar en ég hef heyrt ýmsar sögur, bæði jákvæðar og neikvæðar.

Það er svosem ekki í frásögur færandi en einhverju sinni í biðröðinni í Bónus fór ég að spá í hvað allir (vonandi) eru mikilvægir í augum einhverra. Konan í röðinni fyrir framan mig skiptir mig litlu máli en hún getur skipt einhvern annan öllu máli og ef til vill hefðu einhverjir sem sakna þessarar tilteknu konu viljað skipta við mig til að geta spjallað við konuna og knúsað hana. Mér finnst þetta svo þörf tilhugsun, svona fyrir mig prívat og persónulega. Hún hjálpar mér að umbera fjöldann því ég er alveg ómöguleg í margmenni. Ég vil að fólkið í kringum mig komi vel fram við fólkið sem ég sakna og þykir mjög vænt um - og ég vil gera slíkt hið sama fyrir aðra.

Ég veit ekki hvort það er heil brú í þessu hjá mér, það getur verið svo erfitt að setja svona þankagang í orð. Mér fannst það samt kjörið svona í upphafi árs þegar fólk setur sér ný markmið og strengir sér ýmis heit, hvort sem það er svo til eftirbreytni eður ei.

Ég strengdi engin sérstök áramótaheit þetta árið og það var fullkomlega meðvituð ákvörðun. Ég er búin að vera of lengi í því að setja mér strangar reglur og gera til mín óraunhæfar kröfur sem hafa hreinlega hrópað á mistök og þar af leiðandi valdið mér vanlíðan mun oftar en þörf krefur. Ég vil trúa því að ég sé búin með þann pakka.

Á nýju ári ætla ég að stefna að áframhaldandi bata, leggja mig fram við að loka þessum kafla og horfa bjartsýn fram á við. Ég ætla að einbeita mér að því að sinna hlutum sem eru góðir fyrir mig og stuðla að því að ég rækti mig sem manneskju því ég hef gleymt því í langan tíma. Ég held að þetta séu raunhæf markmið hjá mér, þau krefjast þess ekki að ég nái einhverjum ákveðnum árangri sem verður að vera nákvæmlega svona eða hinsegin.

Ég er nú þegar byrjuð á þessari vinnu. Ég er til dæmis búin að fara í messu af því að mér líður vel í kirkjunni minni. Ég er líka að æfa mig í því að skynja hvernig mér raunverulega líður þá og þá stundina því ég var gjörsamlega búin að týna þessari tilfinningu, bæði líkamlegri og andlegri. Ferlega skrítin líðan.

Þrátt fyrir ólgu í samfélaginu og endalaust vesen í efnahagslífinu ætla ég að bera höfuðið hátt og fara þetta á hnefanum. Ég á það alveg skilið að gefa sjálfri mér tækifæri. Það er einfaldlega kominn tími á að Veikgló, eins og maðurinn minn kallar hana, fái að víkja fyrir Eygló.

Hafið það gott á nýju ári- vonandi full af bjartsýni, æðruleysi og umburðarlyndi

8 Comments:

At January 04, 2010 1:39 AM, Anonymous Edda said...

"búin að bulla nýtt blogg" sagði konan á Andlitsbókinni. Þetta er bara svo langt frá því að vera eitthvað bull Eygló mín, að það hálfa væri meira en hellingur.

Gleðilegt nýtt ár til þín og þinna.

Kveðja
Edda

 
At January 04, 2010 1:41 AM, Blogger Eygló said...

Æ takk fyrir fallegt komment, Edda mín ! :) Manni hlýnar bara um hjartarætur! Gleðilegt ár til þín og allra þinna sömuleiðis :)

 
At January 04, 2010 3:46 AM, Anonymous Anonymous said...

Fyndið, ég var einmitt í svipuðum pælingum á meðan ég beið í bankanum um daginn og reyndi að láta einhverja frekjudollu ekki fara í taugarnar á mér :) Virkilega mikið til í þessu hjá þér.

Ég er virkilega ánægð með þig að huga að sjálfri þér. Það gleymist svo oft í amstri dagsins að finna, hvernig manni líður, hvað mann langar til að gera, hvað maður vill í raun og veru.

Ég er líka svo stolt af þér, ég er viss um að Veikgló fer fljótlega að hypja sig ;)

Knús, Oddný

 
At January 04, 2010 6:45 AM, Anonymous Anonymous said...

Takk fyrir þessar hugleiðingar elsku Eygló mín, og takk fyrir yndislegu dagana okkar hér saman yfir áramótin, þó tíminn væri alltof fljótur að líða, en ég er svo þakklát fyrir að fá að hafa ykkur og finn ennþá nærveru litlu gullmolanna minna. Í dag er ég að hefja nýtt verkenfi sem ég kvíði fyrir, en ég ætla að nota þig til að minna mig á að ég á mig sjálf og ekkert er ómögulegt ! Allar bestu óskir til þín og þinna eins og ævinlega, þín mamma

 
At January 04, 2010 9:39 AM, Blogger Eygló said...

Takk fyrir fallegu kommentin :) knúsur til ykkar!

 
At January 04, 2010 3:08 PM, Anonymous Anonymous said...

*knús* krúsla ... ef þetta er "bull" þá er þetta mjög gott og þarft bull =)

Gangi þér vel í áframhaldandi ferð þinni til Panama - vona að veikgló skilji við þig á leiðinni þangað :)

mbk. Ásta

 
At January 04, 2010 3:34 PM, Blogger Eygló said...

Æ takk Ásta ;)

 
At January 07, 2010 2:02 AM, Anonymous Anonymous said...

Gleðilegt ár Glógló, hlakka til að hitta þig og þín sem oftast á nýja árinu

 

Post a Comment

<< Home