Army of me

Wednesday, December 23, 2009

Gleðileg jól !

Nú eru jólin handan við hornið og nokkurn veginn allt tilbúið hér hjá okkur. En þetta "allt" er frekar afstætt hugtak, það er í rauninni voða mikið smekksatriði hversu miklu maður "þarf" að ljúka og hversu mikið "verður" að gera. Við fjölskyldan ákváðum að vera frekar róleg í þessu öllusaman og það hefur gengið nokkuð vel. Við kláruðum jólagjafir fyrir löngu til að lenda ekki í jólaösinni og svo höfum við notað desember í það að dútla við að skreyta smám saman og hafa það huggulegt saman. Frábært alveg, ég er mjög ánægð með okkur :)

Við ætlum að vera bara heima, litla fjölskyldan þetta árið og ég held það verði mjög huggulegt, og fínt fyrir börnin líka að geta farið beint í eigið ból eftir pakkaopnun og skemmtilegheit.

Ég hef svosem ekki mikið að segja eins og er, ég er enn á fullu í minni baráttu og þó mér finnist ég stundum vera að synda í allt of miklum straumi, þá er ég að þokast hægt og rólega í rétta átt. En meira um það síðar- nú eru að koma jól og svona :-)

Mig langar að óska ykkur öllum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs. Takk fyrir allan stuðninginn, kommentin, knúsin, og bara að hafa lesið orðin mín ! :) Þið eruð yndisleg !

Ítarlegra og einlægara blogg síðar ;)

Jólaknús
Eygló Ida

4 Comments:

At December 25, 2009 2:01 AM, Anonymous Anonymous said...

Gleðileg jól sætan mín vona að þið hafið átt indislegt kvöld sem ég veit að þið hafið átt.
við fórum í kirkju eins og alltaf vorum með gesti frá Sviss sem borðuðu hér. Silli og Aldís voru á æfingu í eldhúsinu heima og allt gekk vel hlakka til að sjá ykkur.halltu áfram á beinu brautinni sæta mín Gamla í sveitinni

 
At December 25, 2009 4:08 AM, Anonymous Anonymous said...

Gleðileg jól Eygló mín. Ég setti jólakort í lúguna á blokkinni, vonandi rataði það rétta leið.

Knús.
Heiða bekkjarsys.

 
At December 29, 2009 2:23 AM, Anonymous Anonymous said...

Bara að láta vita að ég var að lesa mörg blogg núna hef ekki farið hingað inn í langan tíma. Það er alltaf jafn gaman að lesa það sem þú skrifar þér tekst alltaf að segja svo vel frá allveg sama hvert innihaldið er. Bara einn af svo mörgum hæfileikum sem þú hefur elsku Eygló mín. Nú verð ég að fara að hitta ykkur litlu fjölskylduna sjáumst vonandi í kvöld. Ástarkveðja Heiða Björg

 
At December 30, 2009 1:10 AM, Anonymous Anonymous said...

Gleðileg jól Eygló mín, það var gaman að hitta ykkur fjölskylduna í kósý stund um daginn - verðum að gera þetta aftur fljótlega! :) Ég kíki alltaf reglulega hingað og finnst þú vera svo flott - svo er líka gagnlegt fyrir okkur hin að lesa pistlana þína...stundum er einfaldlega gott að láta minna sig á suma hluti og öll erum við að díla við einhverja púka...er það ekki annars?
Gangi þér vel í baráttunni þinni á nýju og góðu ári :) Er alveg viss um að þér eigi eftir að takast vel upp!! Knúsar í kuldann, Jóhanna.

 

Post a Comment

<< Home